Íþróttasvæðið á Jaðarsbökkum eftir að fyrsta áfanga verksins verður lokið. Teikning: ASK arkitektar.

Flotgólf bauð lægst í uppsteypu íþróttahúss á Jaðarsbökkum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi Skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar á mánudaginn voru opnuð tilboð í verkið <em>„Íþróttahús - Uppsteypa og ytri frágangur“</em> að Jaðarsbökkum. Tvö tilboð bárust í verkið og voru þau annars vegar frá Alefli ehf og hljóðaði upp á 1.451 milljón króna og hins vegar frá Flotgólfi upp á 1.212 milljónir króna. Kostnaðaráætlun var 1.088 milljónir króna. Skipulags- og umhverfisráð fól sviðsstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðenda sem felur í sér að þessi verkþáttur við bygginguna verður 124 milljónum krónum hærri en áætlað hafði verið.\r\n\r\nJarðvegsskipti og breytingar á lögnum hefur verið í gangi frá því í haust og annast Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar þann verkþátt. Byggt verður fjölnota íþróttahús og verður það einn áfangi af mörgum í áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja á svæðinu. Húsið samanstendur af fjölnota íþróttasal og hliðarbyggingu á tveimur hæðum fyrir ýmis fylgirými. Íþróttasalurinn er 50 metrar að lengd og 38,5 metrar á breidd að innanmáli, alls 1.925 fermetrar. Í kjallara eru búningsherbergi fyrir íþróttasalinn, Akraneshöllina, Akranesvöll, æfingasvæðið og önnur útisvæði.\r\n\r\nHúsið er ætlað fyrir iðkendur ýmissa greina íþrótta; svo sem knattspyrnu, körfubolta, handbolta og blak, sem og fyrir nemendur Grundaskóla í skólaleikfimi. Búningsherbergin eru fyrir alla iðkendur á svæðinu, jafnt innan dyra sem utan. Einnig er gert ráð fyrir fjölbreyttum uppákomum sem geta farið fram í sal íþróttahússins, svo sem samkomur, tónleikar og svo framvegis.\r\n\r\nSamtals verður mannvirkið ríflega 5.300 fermetrar og leggst annars vegar að norðurgafli Akraneshallarinnar og tengist sundlaugarbyggingu til vesturs hins vegar, eins og sjá má á meðfylgjandi útlitsteikningu.",
  "innerBlocks": []
}
Flotgólf bauð lægst í uppsteypu íþróttahúss á Jaðarsbökkum - Skessuhorn