Frá verðlaunaafhendingu í ljóðasamkeppni Júlíönu hátíðar í fyrra. F.v. Sigþrúður Silja Gunnarsdóttir, formaður dómnefndar, Ægir Þór Jahnke sem hlaut 1. verðlaun í ljóðasamkeppninni, Birna Hjaltadóttir sem hlaut 2. verðlaun og Sigrún Björnsdóttir, sem hlaut 3. verðlaun. Ljósm. úr safni/ Anna Melsteð.

Júlíana framundan í Stykkishólmi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Júlíana, hátíð sögu og bóka, verður haldin dagana 24.-26. mars í Stykkishólmi og verður þetta viðamesta hátíðin frá upphafi. Að hátíðinni standa að þessu sinni þær Ásdís Árnadóttir, Gréta Sigurðardóttir, Nanna Guðmundsdóttir og Sunna Guðný Högnadóttir. „Það verður rosalega skemmtileg dagskrá hjá okkur í ár, eins og alltaf,“ segir Gréta ánægð í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nHátíðin verður formlega sett í kirkjunni fimmtudagskvöldið 24. mars kl. 20:00 þar sem Litla lúðrasveitin mun leika nokkur lög og nemendur kynna það sem þeir hafa verið að gera í samstarfi grunnskólans og Júlíönu hátíðar veturinn 2021. Hólmari ársins verður heiðraður fyrir framlag til menningarmála auk þess sem verðlaun verða afhent í smásagnasamkeppni. „Við höfum alltaf lagt mikið upp úr samstarfi við grunnskólann og ákváðum að auka samstarfið í ár og bjóða öllum nemendum frá 5.-10. bekk að taka þátt, en við höfum áður bara boðið þremur bekkjum í einu,“ segir Gréta. Gunnar Theodór Eggertsson rithöfundur kom og vann með krökkunum að skapandi skrifum fyrir hátíðina. Var áhersla lögð á þjóðsögur eða Íslendingasögurnar. Afrakstur samstarfsins verður kynntur í Amtsbókasafninu föstudaginn 25. mars kl. 11:00.\r\n\r\nYrsa Þöll Gylfadóttir mun lesa fyrir nemendur í fyrsta bekk í hádeginu á föstudeginum og Sveinn Davíðsson mun syngja og spila á gítar á Dvalarheimilinu kl. 14:00 sama dag. Þá verða ýmsir skemmtilegir viðburðir fram eftir degi. Um kvöldið mun Ragnhildur Sigurðardóttir frá Álftavatni segja sögur Guðríðar Þorbjarnardóttur í kirkjunni og svo mun Anton Helgi Jónsson skáld flytja tilgátuljóð sín við ljóð Jónasar Hallgrímssonar. Á laugardeginum verður boðið upp á Júlíönusúpu í Narfeyrarstofu kl. 11:30. Þar mun Bergsveinn Birgisson rithöfundur hitta leshópinn sem hefur verið að lesa bókina hans „Leitin að svarta víkingnum“ í aðdraganda hátíðarinnar. „Leshópurinn hefur verið að lesa þessa bók undir stjórn Ólafs Ólafssonar Sýslumanns og bókaunnanda,“ segir Gréta. Þá verður skemmtileg dagskrá í kirkjunni í Stykkishólmi þar sem Einar Kárason koma og fjalla um Sturlunga og annað fólk. Kl. 15:00 verður kaffisala í Safnaðarheimilinu þar sem kvenfélagskonur verða með kaffi og meðlæti. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur verður í kirkjunni eftir kaffi þar sem hún mun fjalla um Reisubók Guðríðar Símonardóttur. Um kvöldið verður hátíðinni slitið með söng og gleði í kirkjunni. Hægt er fylgjast með viðburðum hátíðarinnar á Facebook síðu Júlíönu-hátíð sögu og bóka.",
  "innerBlocks": []
}
Júlíana framundan í Stykkishólmi - Skessuhorn