Meðfylgjandi eru myndir frá fundunum sem Anna Melsteð tók.

Íbúafundir í Stykkishólmi og Helgafellssveit voru vel sóttir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íbúafundir voru haldnir í sveitarfélögunum tveimur á mánudaginn og var mæting góð á báða fundi. Vegna veðurs tafðist um hálftíma að hefja fund Stykkishólmi en þrátt fyrir það komu fjölmargir gestir til fundarins í Stykkishólmskirkju auk þess sem hægt var að fylgjast með honum í beinni útsendingu frá kirkjunni. Að loknum stuttum ávörpum frá Hrafnhildi Hallvarðsdóttur forseta bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar og Jakobi Björgvini Jakobssyni bæjarstjóra fór Róbert Ragnarsson ráðgjafi nefndarinnar yfir helstu atriði sameiningartillögu sameiningarnefndar sveitarfélaganna og í kjölfarið var opnað fyrir spurningar úr sal og frá áhorfendum í streyminu. Umræður voru góðar og veittu svör við spurningum sem fram komu. Fundur hófst á Skildi klukkan 20 og var mæting góð. Guðrún Reynisdóttir oddviti sveitarstjórnar Helgafellssveitar bauð fundargesti velkomna og Jakob Björgvin tók svo við stjórn fundarins og ávarpaði gesti. Róbert kynnti aftur helstu atriði líkt og í Stykkishólmskirkju og eftir það var opnað fyrir umræður. Góðar umræður urðu á fundinum og lauk fundi um hálf tíu. Fundarmenn á báðum fundum voru sáttir við vinnu sameiningarnefndar og lögðu áherslu á að allir íbúar nýttu sér kosningaréttinn á kjördag laugardaginn 26. mars.\r\n\r\nÞess má geta að upptökur frá báðum fundum er að finna á Facebook síðu verkefnisins Breiðfirðingar auk þess sem íbúar eru hvattir til að leggja fram spurningar á vefnum helgafellssveit.is. Meðfylgjandi eru myndir frá fundunum.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-52038\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Ibuafundir-i-Stykkisholmi-og-Helgafellssveit-voru-vel-sottir_2-600x378.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Íbúafundir í Stykkishólmi og Helgafellssveit voru vel sóttir - Skessuhorn