Fréttir

true

Lá við festar þar til veðrið gekk niður

Það þykir með tíðunum sæta þegar stór flutningaskip liggja við festar á víkinni fyrir framan Ólafsvík. Þar lá á mánudaginn við festar sænska flutningaskipið Sunnanvík, en samkvæmt siglingaleið skipsins hafði það farið suður fyrir Öndverðarnes en snúið svo við og haldið inn á víkina. Skipið er 124 metra langt, 18 metra breitt og 9.100 tonn…Lesa meira

true

Skallagrímur vann Vesturlandsslaginn

ÍA og Skallagrímur mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Það hefur oft verið meira undir en í leiknum í gær því fyrir leikinn voru Skagamenn fallnir í 2. deild og Skallagrímur á lygnum sjó í áttunda sæti í deildinni. Vesturlandsslagurinn snýst þó…Lesa meira

true

Þriggja bíla árekstur á Vatnaleið

Á tíunda tímanum í morgun varð þriggja bíla árekstur á Vatnaleið á Snæfellsnesi. Dimm él voru á svæðinu og skyggni lítið. Hraði á bílunum var því ekki mikill. Engin slys urðu á fólki en bílarnir allir talsvert skemmdir og óökufærir eftir áreksturinn. Á meðan verið er að fjarlægja bílana eru ökumenn beðnir um að aka…Lesa meira

true

Færeyskt frystiskip með viðkomu í Ólafsvík

Færeyska frysti- og línuveiðiskipið Jogvan 1 frá Toftum í Færeyjum leitaði til hafnar í morgun í Ólafsvík vegna bilunar í beitningarvél. Biðu skipverjar eftir viðgerðarmönnum frá Mustad í Reykjavík, umboðsmönnum beitningarvélanna. Að sögn Bjarta Petersen á Jogvan eru þeir komnir með 100 tonn af fiski um borð og ætla að ná 200 tonnum áður en…Lesa meira

true

Skagamenn á leið í æfingabúðir til Spánar

Leikmenn meistaraflokks ÍA í karlaboltanum halda í æfingaferð til Salou á Spáni á föstudaginn. Jón Þór Hauksson þjálfari liðsins segir að ferðin sé hluti af lokaundirbúningi liðsins fyrir Íslandsmótið sem nú heitir Besta deildin. Fyrsti leikur Skagamanna verður gegn Stjörnunni í Garðabæ 19. apríl og lýkur þann 17. september á Akranesvelli gegn Leikni Reykjavík. Í…Lesa meira

true

Auglýsa eftir tilboðum í heildarhönnun á nýju íþróttahúsi

Hvalfjarðarsveit hefur óskað eftir tilboðum í heildarhönnun verkfræði- og landslagshönnunar á nýju íþróttahúsi sem á að byggja við íþróttahúsið Heiðarborg. „Tilboð skal fela í sér fullnaðarhönnun verkfræðinga á öllum verkþáttum sem nauðsynlegir eru til að fullgera bygginguna tilbúna til notkunar auk landslagshönnunar,“ segir í auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins. Tilboð skal skilað í síðasta lagi kl.…Lesa meira

true

Dansmaraþoni lokið í Reykholti

Fermingarbörn í Borgarbyggð dönsuðu í heilan sólarhring um síðustu helgi og söfnuðu um leið fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu. Auk þess að dansa fengu krakkarnir fermingarfræðslu og kynningu á vatnsverkefninu sem þau voru að safna fyrir. „Og tóku þátt í öllu af heilum hug og hjarta og sýndu kærleika í verki,“ segir á Facebook síðu Reykholtsprestakalls…Lesa meira

true

Stóriðjan í erfiðri stöðu

Skerðing Landsvirkjunar á afhendingu rafmagns til stórkaupenda eins og Elkem á Grundartanga hefur haft töluverð áhrif á starfsemi þessara fyrirtækja. Staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar er ekki góð núna en þetta er eitt erfiðasta vatnsár í sögu Landsvirkjunar í átta ár. Miklir þurrkar síðasta sumar og haust urðu til þess að Þórisvatn fylltist ekki en það…Lesa meira

true

Svartþröstur í sumarskapi

Á meðan við bíðum eftir vorboðanum, lóunni, til að kveða burt snjóinn og lægðirnar sem hafa gengið yfir landið síðustu vikur er svartþröstur á Akranesi kominn í sumarskap. Bjarni Þór Bjarnason listamaður fann þrjú egg í hreiðri ofan á kransi utan á húsinu sínu síðastliðinn laugardag. Því til sönnunar deildi hann á Facebook myndum af…Lesa meira

true

Óskuðu eftir greiningu á flutningi leikskóla á Varmaland

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku óskuðu fulltrúar Framsóknarflokksins, sem sitja í minnihluta, eftir umræðum og greiningu á þeim möguleika að flytja leikskólann á Bifröst á Varmaland síðar á þessu ári þannig að á staðnum yrði samrekinn leik- og grunnskóli. Í bókun sem Magnús Smári Snorrason (S) formaður fræðslunefndar lagði fram á fundinum fyrir…Lesa meira