Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA. Ljósm. úr safni/kgk

Skagamenn á leið í æfingabúðir til Spánar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Leikmenn meistaraflokks ÍA í karlaboltanum halda í æfingaferð til Salou á Spáni á föstudaginn. Jón Þór Hauksson þjálfari liðsins segir að ferðin sé hluti af lokaundirbúningi liðsins fyrir Íslandsmótið sem nú heitir Besta deildin. Fyrsti leikur Skagamanna verður gegn Stjörnunni í Garðabæ 19. apríl og lýkur þann 17. september á Akranesvelli gegn Leikni Reykjavík. Í byrjun október hefst síðan úrslitakeppni sem er nýjung í efstu deild karla.\r\n\r\nJón Þór segir að æfingar hafi gengið mjög vel eftir að hann tók við liðinu, þrátt fyrir bakslag fljótlega eftir að hann kom til starfa vegna meiðsla og Covid smita hjá leikmönnum. Segir hann nú allt komið á fullt fyrir lokaundirbúninginn og kveðst sáttur með frammistöðu liðsins í  æfingaleikjunum í vetur.\r\n\r\n„Ég er sáttur með leikmannahópinn og tel að þeir leikmenn sem við höfum fengið til liðs við hópinn að undanförnu muni styrkja hann mikið. Eins og flest lið erum við áfram að líta í kringum okkur í leikmannamálum og það kemur bara í ljós hvað gerist en það eru hins vegar ungir og efnilegir strákar sem hafa verið að standa sig vel í æfingaleikjunum sem ég hef fulla trú á,“ segir Jón Þór.\r\n\r\nSpurður út í meiðsli leikmanna þá segir hann að bæði Hallur Flosason og Hollendingurinn Wout Droste væru að glíma við meiðsli. Hallur væri farinn að æfa en Hollendingurinn hefur ekkert getað æft í vetur vegna meiðsla. En góðu fréttirnar væru þær að Oliver Stefánsson lék í þrjátíu mínútur í æfingaleik gegn Haukum í Akraneshöllinni síðastliðinn fimmtudag í leik sem Skagamenn sigruðu 3:0 og hefði liðið að mestu verið skipað yngri leikmönnum.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn á leið í æfingabúðir til Spánar - Skessuhorn