Beðið eftir kyrrara veðri. Ljósm. af.

Lá við festar þar til veðrið gekk niður

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það þykir með tíðunum sæta þegar stór flutningaskip liggja við festar á víkinni fyrir framan Ólafsvík. Þar lá á mánudaginn við festar sænska flutningaskipið Sunnanvík, en samkvæmt siglingaleið skipsins hafði það farið suður fyrir Öndverðarnes en snúið svo við og haldið inn á víkina. Skipið er 124 metra langt, 18 metra breitt og 9.100 tonn að stærð.\r\n\r\nAð sögn hafnarvarðar hafði skipstjóranum ekki litist á veðrið og ölduhæðina sem var á þessum slóðum á mánudaginn, en í suðvestan átt er mikill sjór og ekki bætir ef skipið er tómt veltur það enn meira í svona hamagangi. Á myndinni má sjá Sunnanvík liggja við festar og dragnótarbátinn Steinunni SH í forgrunni, en fáir bátar hafa róið að undanförnu vegna veðurs, en afli Steinunnar var 18 tonn í þessum róðri.",
  "innerBlocks": []
}
Lá við festar þar til veðrið gekk niður - Skessuhorn