
Varmaland.
Óskuðu eftir greiningu á flutningi leikskóla á Varmaland
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku óskuðu fulltrúar Framsóknarflokksins, sem sitja í minnihluta, eftir umræðum og greiningu á þeim möguleika að flytja leikskólann á Bifröst á Varmaland síðar á þessu ári þannig að á staðnum yrði samrekinn leik- og grunnskóli. Í bókun sem Magnús Smári Snorrason (S) formaður fræðslunefndar lagði fram á fundinum fyrir hönd meirihluta sveitarstjórnar kemur m.a. fram að ekki væri raunhæft að framkvæma þessa greiningu á þessu ári auk þess sem sveitarfélagið væri bundið samningi við Hjallastefnuna varðandi rekstur á leikskólanum Hraunborg á Bifröst.\r\n\r\n„Þá eru ekki fjárheimildir til staðar á yfirstandandi ári fyrir þessari ákvörðun, eða úttekt á ástandi húsnæðisins á Varmalandi, kostnaður við breytingar vegna leikskóladeildar, áhrif ákvörðunarinnar á skólaakstur og gildandi samninga þar um og fl. Gera þarf ráð fyrir að greiningar af þessu tagi þurfi að ígrunda vel,“ segir í bókun meirihlutans. „Fulltrúar meirihlutans telja að allar ákvarðanir eins og sú sem er hér til umfjöllunar skuli nálgast af yfirvegun, samtali og með gögnum. Á þeim grundvelli hafnar meirihlutinn því að þessi tillaga verði tekin út fyrir sviga og afgreidd með hraði. Málið er í góðum farvegi hjá fræðslunefnd og verður tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar og er reiknað með að niðurstaða liggi fyrir í vor og þá verður hægt að leggja mat á þá kosti sem eru í stöðunni.“ Var tillaga Framsóknarmanna því felld með fimm atkvæðum gegn fjórum.",
"innerBlocks": []
}