
Jogvan 1 frá Færeyjum er nú við bryggju í Ólafsvík. Ljósm. af.
Færeyskt frystiskip með viðkomu í Ólafsvík
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Færeyska frysti- og línuveiðiskipið Jogvan 1 frá Toftum í Færeyjum leitaði til hafnar í morgun í Ólafsvík vegna bilunar í beitningarvél. Biðu skipverjar eftir viðgerðarmönnum frá Mustad í Reykjavík, umboðsmönnum beitningarvélanna.\r\n\r\nAð sögn Bjarta Petersen á Jogvan eru þeir komnir með 100 tonn af fiski um borð og ætla að ná 200 tonnum áður en þeir halda til löndunar í Færeyjum. „Það er búið að vera hræðileg veður allan túrinn svo við erum ánægðir með aflabrögð miðað við veðuraðstæður,“ sagði Bjarti í samtali við Skessuhorn. Um borð í skipinu er 16 manna áhöfn.\r\n\r\nEins og vanalega þegar bátar koma til hafnar vill vera mannmargt á bryggjunni til þess að spjalla við skipsverja. Einn þeirra sem mættu á bryggjuna var Pétur Steinar Jóhannsson, sem er ritstjóri Sjómannablaðs Snæfellsbæjar. Hann kom færandi hendi og fór um borð til þess að gefa skipsverjum nokkur gömul sjómannablöð. Voru þau vel þegin af skipverjum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51964\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51964 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Faereyskt-linuveidiskip-med-vidkomu-i-Olafsvik_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Bjarti Petersen og Idar Beck voru brosmildir eins og færeyingum er tamt.[/caption]",
"innerBlocks": []
}