Álfheiðir Ágústsdóttir forstjóri Elkem Ísland.

Stóriðjan í erfiðri stöðu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skerðing Landsvirkjunar á afhendingu rafmagns til stórkaupenda eins og Elkem á Grundartanga hefur haft töluverð áhrif á starfsemi þessara fyrirtækja. Staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar er ekki góð núna en þetta er eitt erfiðasta vatnsár í sögu Landsvirkjunar í átta ár. Miklir þurrkar síðasta sumar og haust urðu til þess að Þórisvatn fylltist ekki en það er mikilvægasta miðlunarlónið á stærsta vinnslusvæði Landsvirkjunar. Úrkoma úr lægðunum sem hafa gengið yfir landið undanfarnar vikur hefur ekki skilað sér ennþá í lónið þar sem lægðirnar fluttu með sér snjó en ekki regn á hálendingu. Ljóst er að miðað við stöðuna í dag verða áfram skerðing á afhendingu rafmagns út apríl en allt verður gert til að tryggja afhendingu á forgangsorku.\r\n\r\nAð sögn Álfheiðar Ágústsdóttur, forstjóra Elkem Ísland á Grundartanga, hefur verulega dregið úr framleiðslu fyrirtækisins vegna þessarar stöðu. Slökkt hefur verið á einum ljósbogaofni af þremur og er hann sá stærsti. „Heilt yfir er þetta erfitt og við missum vissulega framleiðslu, sem hefur áhrif. En við gerum það besta í stöðunni og ofninn sem við tókum út fer í viðhald á meðan. Við leggjum líka upp með að fjárfesta í fólkinu og notum þennan tíma í þjálfun fyrir starfsfólk og gera þá hluti sem við höfum ekki náð að gera lengi, sinna viðhaldi, þrífa og gera fínt,“ segir Álfheiður.",
  "innerBlocks": []
}
Stóriðjan í erfiðri stöðu - Skessuhorn