Venus kemur með loðnu á Skagann. Ljósm. gsv.

Venus kom að nýju með sama farminn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Venus NS, eitt af uppsjávarveiðiskipum Brims, kom í morgun til löndunar á Akranesi í annað skipti með sama farminn. Skipið kom á mánudaginn en þurfti frá að hverfa í fyrrinótt vegna súgs og óláta í Akraneshöfn. Venus þurfti að keyra skrúfur þegar reynt var að halda skipinu upp við bryggju, á meðan á dælingu stóð, en eftir um 200 tonna dælingu var hætt og skipinu siglt til Reykjavíkur aftur og beðið á meðan veður gengi niður. Í látunum í fyrrinótt slitnaði m.a. upp landstraumskassi af bryggjunni og allar sjósíur í vinnslunni fylltust af sandi, að sögn heimildarmanns Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
Venus kom að nýju með sama farminn - Skessuhorn