Fréttir

true

Menntaskóli Borgarfjarðar Mannréttindaskóli ársins 2021

Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut á mánudaginn viðurkenningu frá Íslandsdeild Amnesty International sem mannréttindaskóli ársins 2021. Þetta er í fyrsta sinn sem skólinn sigrar í þessari keppni og hlaut hann verðlaunin fyrir frammistöðu sína í framhaldsskólakeppni samtakanna. Nemendur skólans söfnuðu alls 475 undirskriftum sem voru hlutfallslega flestar undirskriftir miðað við nemendafjölda í framhaldsskólum á landinu. Menntaskóla Borgarfjarðar…Lesa meira

true

Söngleikurinn Slá í gegn frumsýndur á föstudaginn í Lyngbrekku

Næsta föstudag ætlar leikdeild Umf. Skallagríms að frumsýna söngleikinn Slá í gegn í félagsheimilinu Lyngbrekku. Söngleikinn samdi Davíð Guðjón Karlsson í kringum lög Stuðmanna og fjallar verkið um sirkus sem ætlar að setja upp stórsýningu í litlu þorpi úti á landi. Því er ekki vel tekið af Sigurjóni sem er að hamast við að setja…Lesa meira

true

Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna

Mennta- og menningarráðuneytið vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2022. „Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Ein verðlaun eru veitt fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarfs, önnur eru veitt framúrskarandi kennara og þau þriðju…Lesa meira

true

Tríóið Sírajón heldur tónleika í Vinaminni

Tríóið Sírajón kemur fram á tónleikum Listafélagsins Kalmans næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 20 í Vinaminni á Akranesi. Tríóið skipa þau Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, Einar Jóhannesson klarínettuleikari og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari. Sviðstónlist úr leikhúsinu rammar inn efnisskrá Tríós Sírajóns með mörgum stuttum og hnyttnum þáttum í verkum Poulencs og Hjálmars H. Ragnarssonar. Þar á milli flytja…Lesa meira

true

Vegir eru víða illa farnir eftir veturinn

Mjög víða eru þjóðvegir, sem og götur í þéttbýli, illa farnir eftir tíðarfarið í vetur. Vegfarendur kannast við slitlagsskemmdir og jafnvel djúpar og varasamar holur sem víða hafa myndast í leysingunum. Sé óvarlega ekið er hægt að skemma bæði hjólbarða og felgur. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru því í önnum þessa dagana við viðgerðir. Töluvert er af…Lesa meira

true

Söfnuðu fyrir Rauða krossinn í Úkraínu

Þessar ungu og brosmildu stúlkur komu færandi hendi í dag og afhentu Rauða krossinum á Akranesi samtals 62.500 krónur sem þær höfðu safnað til styrktar starfi Rauða krossins í Úkraníu. Þær heita: Jófríður Jara Sturludóttir, Sigurveig Sara Elvarsdóttir, Maren Rún Jónsdóttir, Hekla María Davíðsdóttir, Regína Rún Hauksdóttir og Guðrún Margrét Halldórsdóttir. Rauði krossinn á Akranesi…Lesa meira

true

Upplýsingar til þeirra sem vilja styðja Úkraínufólk á stríðstímum

Mikill velvilji er í samfélaginu vegna ástandsins í Úkraínu og nágrannalöndum þess sem hafa tekið á móti fólki á flótta. Á sérstöku vefsvæði þar sem tekin eru saman viðbrögð íslenskra stjórnvalda við innrás Rússlands í Úkraínu er að finna upplýsingar um hvernig einstaklingar geta veitt stuðning til Úkraínu þannig hann nýtist sem best. Meðfylgjandi eru upplýsingar…Lesa meira

true

Ólsari góður í tippinu

Það var Ólafsvíkingur sem var með alla leikina 13 rétta á enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og vann rúmar 930 þúsund krónur. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að hann var með sex leiki tvítryggða og sjö með einu merki og kostaði seðillinn 896 krónur. Fast á eftir honum kom Siglfirðingur, einnig með 13 rétta…Lesa meira

true

Raflínustrengur slitnaði ítrekað

Rafmagnsleysis varð vart sunnan Búðardals í Dölum á laugardagskvöld og fram eftir aðfararnótt sunnudags. Vakti það nokkra undrun íbúa, þar sem veðrið var venju fremur gott og engar tilkynningar höfðu borist um mögulegar truflanir. Laxárdalur, Haukadalur, Miðdalir og Skógarströnd misstu rafmagn á tímabili á laugardagskvöldið, en eftir miklar prófanir og inn- og útslátt rafmagns kom…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði á móti Hetti fyrir austan

Skallagrímur fór í langferð síðasta föstudag og lék gegn liði Hattar í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í MVA-höllinni á Egilsstöðum. Leikurinn var jafn í byrjun, um miðbik fyrsta leikhluta var staðan 11:11 en þá skoruðu heimamenn ellefu stig í röð og staðan allt í einu 22:11 fyrir Hetti. Staðan breyttist…Lesa meira