
Ólafsvíkurvöllur. Ljósm. þa.
Ólsari góður í tippinu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það var Ólafsvíkingur sem var með alla leikina 13 rétta á enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og vann rúmar 930 þúsund krónur. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að hann var með sex leiki tvítryggða og sjö með einu merki og kostaði seðillinn 896 krónur. Fast á eftir honum kom Siglfirðingur, einnig með 13 rétta og fær sá 915 þúsund krónur í sinn hlut. Hann var með fimm leiki tvítryggða og átta með einu merki og kostaði seðillinn 448 krónur. Tveir tipparar voru svo með 13 rétta á Sunnudagsseðlinum og hlutu þeir rúmar 300 þúsund krónur í sinn hlut.",
"innerBlocks": []
}