{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mjög víða eru þjóðvegir, sem og götur í þéttbýli, illa farnir eftir tíðarfarið í vetur. Vegfarendur kannast við slitlagsskemmdir og jafnvel djúpar og varasamar holur sem víða hafa myndast í leysingunum. Sé óvarlega ekið er hægt að skemma bæði hjólbarða og felgur. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru því í önnum þessa dagana við viðgerðir. Töluvert er af holum sem þarf að fylla í ásamt því að lagfæra eða skipta um stikur sem hafa farið úr skorðum vegna veðurs eða snjóruðnings.\r\n\r\nÁ meðfylgjandi mynd eru þeir Guðjón Hrannar Björnsson og Sigurjón Hilmarsson starfsmenn Vegagerðarinnar sem voru að nýta góða veðrið fyrir síðustu helgi til að sinna þessum verkefnum á Snæfellsnesi. Þeir höfðu um morguninn byrjað á Hellissandi og voru komnir austur fyrir Búlandshöfða þegar ljósmyndari hitti þá félaga. Stefnan hjá þeim var að klára að holufylla og laga stikur að Grundarfirði áður en þeir hættu. Áætluðu þeir að nota þrjú tonn af viðgerðarefni í þennan kafla vegarins.",
"innerBlocks": []
}
Vegir eru víða illa farnir eftir veturinn - Skessuhorn