Fréttir

true

Fermingarbörn safna fyrir vatnsbrunni með dansi

Fermingarbörn í Borgarbyggð ætla að dansa í sólarhring frá föstudegi til laugardags og um leið að safna fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu. „Vatnssöfnun fermingarbarna er eitt stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Okkar fermingarbörn hér í sveitinni búa ekki við að geta gengið á milli húsa og safnað pening og ætla þau að leysa það með sólarhrings dansmaraþoni…Lesa meira

true

Jaclyn setur upp sýningu á Vetrardögum á Akranesi

Helgina 18.-20. mars næstkomandi ætlar listakonan Jaclyn Poucel að halda sýningu á málverkum sínum á Akranesi. Jaclyn er 28 ára listakona og fótboltakona frá Lancaster í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum. „Það er ekki langt frá Philadelphia,“ útskýrir hún. Jaclyn flutti fyrst til Íslands árið 2016 til að spila fótbolta með ÍA í Pepsi deildinni. Hún kynntist…Lesa meira

true

Þrítug að aldri mun Líf Lárusdóttir leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi til kosninga í vor

Í byrjun síðustu viku samþykkti fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akranesi tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 14. maí í vor. Sjálfstæðisflokkurinn á nú fjóra bæjarfulltrúa og situr í minnihluta. Einungis einn af sitjandi fulltrúum gefur kost á sér í baráttusæti en nýtt fólk á vettvangi stjórnmálanna tekur við keflinu. Oddviti listans er Líf Lárusdóttir, þrítug…Lesa meira

true

Leggja til breytingar á gæludýrahaldi í fjölbýli

Þingmenn Flokks fólksins hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem felur í sér breytingu á lögum um gæludýrahald í fjöleignarhúsum. Þar er m.a. lagt til að hunda- og kattahald í fjöleignarhúsi verði ekki háð samþykki annarra eigenda. Gert er ráð fyrir að húsfélag geti sett nánari reglur um hunda- og kattahald á húsfundi með samþykki…Lesa meira

true

Skagafiskur stækkar við sig

Skagafiskur á Akranesi var að bæta við sig vinnslu sem er staðsett við Faxabraut niður við höfnina og hófst vinna þar upp úr áramótum. Að sögn Péturs Ingasonar, annars eiganda Skagafisks, byrjuðu þau með smá prufukeyrslu í desember til að sjá hvernig þetta virkaði og hafa verið að bæta í síðan. „Við erum búin að…Lesa meira

true

Sjálfstæðismenn í Borgarbyggð samþykkja framboðslista

Á fundi Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð í kvöld var borin upp og samþykkt tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí. Líkt og fyrir fjórum árum er það Lilja Björg Ágústsdóttir forseti sveitarstjórnar sem er í oddvitasæti listans. Nýir frambjóðendur koma í næstu sæti. Listinn í heild er þannig: Nr. 1. Lilja Björg Ágústsdóttir,Signýjarstöðum Hálsasveit…Lesa meira

true

Slökkvistarfi lokið í Grundarfirði

Búið er að slökkva eld sem logað hefur í kvöld í iðnaðarhúsinu Sólvöllum 5 í Grundarfirði. Mikill eldur var í húsinu þegar slökkvistarf hófst á sjöunda tímanum í kvöld. Ljóst er að húsið er gjörónýtt og allt sem í því var; tæki og búnaður m.a. frá Snæfellsnes excursion og Bifreiðaþjónustu Snæfellsness. Það náðist að verja…Lesa meira

true

Eldur í atvinnuhúsnæði í Grundarfirði

Slökkvilið Grundarfjarðar berst nú við eld í atvinnuhúsnæði við Sólvelli 5 í Grundarfirði. Eldsins varð vart á sjöunda tímanum í kvöld. Nú rétt í þessu var viðbótarmannskapur og tæki að koma til aðstoðar frá Slökkviliði Snæfellsbæjar. Í húsinu eru þrjú fyrirtæki starfrækt, meðal annars Bifreiðaþjónusta Snæfellsness og Snæfellesnes excursion. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er fólk ekki…Lesa meira

true

Rúta fór út af á Bröttubrekku

Óhapp varð í umferðinni á laugardagskvöldið á Bröttubrekku þegar rúta fór út af veginum með 14 manns innan borðs. Engin slys urðu á fólki og voru farþegar fluttir yfir í aðra bíla. Engar teljanlegar skemmdir urðu á rútunni og var hún sótt síðar um kvöldið.Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu naumlega fyrir Hrunamönnum

ÍA og Hrunamenn mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Flúðum í Hrunamannahreppi. Leikurinn byrjaði fjörlega og jafnræði var með liðunum út fyrsta leikhluta, staðan 21:24 fyrir ÍA. Í öðrum leikhluta voru Skagamenn með yfirhöndina fyrri hlutann en Hrunamenn náðu að minnka muninn fyrir hálfleikshléið og staðan 48:49…Lesa meira