Þrítug að aldri mun Líf Lárusdóttir leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi til kosninga í vor

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í byrjun síðustu viku samþykkti fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akranesi tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 14. maí í vor. Sjálfstæðisflokkurinn á nú fjóra bæjarfulltrúa og situr í minnihluta. Einungis einn af sitjandi fulltrúum gefur kost á sér í baráttusæti en nýtt fólk á vettvangi stjórnmálanna tekur við keflinu. Oddviti listans er Líf Lárusdóttir, þrítug Skagakona, sem einnig á sínar rætur í Borgarnesi. Blaðamaður Skessuhorns fékk að kíkja í heimsókn til hennar undir lok vikunnar á bjart og fallegt heimili hennar við Reynigrund. Líf er nú í fæðingarorlofi. Meðan rætt var við hana svaf úti í vagni Agla, sjö mánaða dóttir hennar og Ragnars Þórs Gunnarssonar. Eldri dóttirin Móey var á leikskólanum. Við ræðum upprunann, skólagönguna og starfsferilinn, en þó aðallega sýn hennar á bæjarmálin.\r\n\r\n<em>Viðtal við Líf má lesa í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Þrítug að aldri mun Líf Lárusdóttir leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi til kosninga í vor - Skessuhorn