Slökkvistarfi lokið í Grundarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Búið er að slökkva eld sem logað hefur í kvöld í iðnaðarhúsinu Sólvöllum 5 í Grundarfirði. Mikill eldur var í húsinu þegar slökkvistarf hófst á sjöunda tímanum í kvöld. Ljóst er að húsið er gjörónýtt og allt sem í því var; tæki og búnaður m.a. frá Snæfellsnes excursion og Bifreiðaþjónustu Snæfellsness. Það náðist að verja tæki sem stóðu utan dyra sem og hús Ragnars og Ásgeirs sem stendur þétt upp við það sem brann. Slökkvilið Grundarfjarðar og Slökkvilið Snæfellsbæjar komu að aðgerðum í kvöld sem og aðrir útkallsaðilar.",
  "innerBlocks": []
}
Slökkvistarfi lokið í Grundarfirði - Skessuhorn