{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þingmenn Flokks fólksins hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem felur í sér breytingu á lögum um gæludýrahald í fjöleignarhúsum. Þar er m.a. lagt til að hunda- og kattahald í fjöleignarhúsi verði ekki háð samþykki annarra eigenda. Gert er ráð fyrir að húsfélag geti sett nánari reglur um hunda- og kattahald á húsfundi með samþykki allra eigenda, enda séu þær eðlilegar, málefnalegar og á jafnræði reistar. Þó eru reistir varnaglar en í frumvarpinu segir: „Húsfélag getur með samþykki tveimur þriðja hluta eigenda lagt bann við dýrahaldi ef það veldur öðrum íbúum verulegum ama, ónæði og truflunum og eigandi dýrsins neitar að gera bót þar á.“",
"innerBlocks": []
}
Leggja til breytingar á gæludýrahaldi í fjölbýli - Skessuhorn