Jónheiður og Jónína Björg voru að flaka ýsu í nýju húsnæði Skagafisks þegar blaðamaður Skessuhorns kíkti við hjá þeim í gær.

Skagafiskur stækkar við sig

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagafiskur á Akranesi var að bæta við sig vinnslu sem er staðsett við Faxabraut niður við höfnina og hófst vinna þar upp úr áramótum. Að sögn Péturs Ingasonar, annars eiganda Skagafisks, byrjuðu þau með smá prufukeyrslu í desember til að sjá hvernig þetta virkaði og hafa verið að bæta í síðan. „Við erum búin að panta nýja roðflettivél sem við fáum eftir mánuð og erum að byggja upp vinnsluna í rólegheitum svona samhliða rekstrinum á búðinni.“ Skagafiskur er bæði verslun og dreifingaraðili fyrir ferskan fisk og segir Pétur að stefnan sé að auka þann hluta og þess vegna eru þau komin með þessa vinnslu. „Planið er að allur fiskur verði unninn í vinnslunni og komi pakkaður hingað upp eftir í verslunina. Við búum til alla fiskréttina hér í versluninni en öll grófari vinnsla mun fara fram í vinnslunni. Við keyptum alltaf allan fisk af fiskheildsala í Hafnarfirði en núna kaupum við hann á fiskmörkuðunum og erum því alltaf með ferskasta fisk sem hægt er að fá,“ segir Pétur.\r\n\r\nHúsnæðið er rúmir 100 fermetrar og segir Pétur að þau reikni með að hafa þarna þrjá til fjóra starfsmenn en það sé erfitt að fá vant fólk í þessi störf. „Við erum með einn starfsmann núna, sem er að flaka og svo erum við Jónheiður að hlaupa í þetta með að roðfletta og slægja og þess háttar. Það er bara viðbót samhliða því sem við erum að gera hér. Svo þegar nýja roðflettivélin kemur mun það spara hellings tíma fyrir okkur. Við ákváðum að kaupa litla og netta vél sem á eftir að flýta mikið fyrir. Aðal vandamálið er að finna starfsfólk en við höfum verið að leita að starfsfólki í einn og hálfan mánuð en ekki gengið nógu vel,“ segir Pétur að lokum.",
  "innerBlocks": []
}
Skagafiskur stækkar við sig - Skessuhorn