Söngleikurinn Slá í gegn frumsýndur á föstudaginn í Lyngbrekku
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Næsta föstudag ætlar leikdeild Umf. Skallagríms að frumsýna söngleikinn Slá í gegn í félagsheimilinu Lyngbrekku. Söngleikinn samdi Davíð Guðjón Karlsson í kringum lög Stuðmanna og fjallar verkið um sirkus sem ætlar að setja upp stórsýningu í litlu þorpi úti á landi. Því er ekki vel tekið af Sigurjóni sem er að hamast við að setja upp verkið Gullna hliðið í félagsheimilinu í þorpinu. Sigurjóni þykir sirkusinn vera að ryðjast inn á hans svæði þar sem ekki sé pláss fyrir fleiri en eina sýningu í þorpinu. „Þetta er verk sem segir frá þessum sirkus og sýningu Sigurjóns og ati þar á milli,“ útskýrir Hafsteinn Þórisson í samtali við Skessuhorn. „Annars vil ég ekki segja of mikið, fólk verður bara að kíkja,“ bætir hann við. Leikstjóri er Elvar Logi Hannesson.\r\n\r\nBúið er að áætla tíu sýningar ef allt gengur að óskum og er hægt að panta miða hjá Hafsteini í síma 696-1544 eða á senda póst á netfangið leikdeildskalla@gmail.com",
"innerBlocks": []
}
Söngleikurinn Slá í gegn frumsýndur á föstudaginn í Lyngbrekku - Skessuhorn