
Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Er úr safni Skessuhorns frá því raflínustaurar höfðu kubbast sundur í Staðarsveit.
Raflínustrengur slitnaði ítrekað
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Rafmagnsleysis varð vart sunnan Búðardals í Dölum á laugardagskvöld og fram eftir aðfararnótt sunnudags. Vakti það nokkra undrun íbúa, þar sem veðrið var venju fremur gott og engar tilkynningar höfðu borist um mögulegar truflanir. Laxárdalur, Haukadalur, Miðdalir og Skógarströnd misstu rafmagn á tímabili á laugardagskvöldið, en eftir miklar prófanir og inn- og útslátt rafmagns kom í ljós að bilunin var á Skógarströnd, milli Gunnarsstaða og Dunks. Þess vegna var hægt að koma straumi á byggðina, sunnan Búðardals allt að Blönduhlíð, innan ekki svo langs tíma. Samkvæmt upplýsingum hjá bilanadeild Rarik á Vesturlandi gengu starfsmenn Rarik með línunni á laugardagskvöldið til að finna hvar hún var biluð. Þegar bilunin fannst og farið var að reyna að setja saman strenginn sem rofnað hafði, var hann það lélegur að hann slitnaði ítrekað í sundur og kalla varð eftir liðsauka og nýjum streng úr Búðardal. Rafmagnslaust var því á Skógarströnd í á fjórtándu klukkustund og var farið að kólna í húsum þar á sunnudagsmorgun.\r\n\r\nÞessar rafmagnsbilanir eru þær síðustu í langri röð bilana síðustu vikur og orsakast af samspili gamalla raflína og slæmri tíð. Bæði menn og rafmagnstæki eru komin með ýmis þreytueinkenni af þessum sökum. Kerti og ennisljós eru nú tiltæk á öllum heimilum og þegar þessi frétt er skrifuð á mánudegi er einmitt slegið út í Saurbæ, þar sem unnið var að viðgerð, sem orsakaðist af illviðri nýlega.",
"innerBlocks": []
}