Á myndinni má sjá þau Völu Ósk Bergsveinsdóttur fræðslustýru og Árna Kristjánsson, ungliða og aðgerðastjóra frá Amnesty á Íslandi, afhenda Daníel Fannari formanni NMB og Sölva G. Gylfasyni kennara verðlaunin. Ljósm. MB

Menntaskóli Borgarfjarðar Mannréttindaskóli ársins 2021

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut á mánudaginn viðurkenningu frá Íslandsdeild Amnesty International sem mannréttindaskóli ársins 2021. Þetta er í fyrsta sinn sem skólinn sigrar í þessari keppni og hlaut hann verðlaunin fyrir frammistöðu sína í framhaldsskólakeppni samtakanna. Nemendur skólans söfnuðu alls 475 undirskriftum sem voru hlutfallslega flestar undirskriftir miðað við nemendafjölda í framhaldsskólum á landinu. Menntaskóla Borgarfjarðar er umhugað um að fræða nemendur um mannréttindi sín og annarra enda eru mannréttindi einn af grunnþáttum menntunar. Auk þess er sérstaklega mikilvægt á þessum tímum að huga að því að efla virðingu fyrir mannréttindum.",
  "innerBlocks": []
}
Menntaskóli Borgarfjarðar Mannréttindaskóli ársins 2021 - Skessuhorn