Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Mennta- og menningarráðuneytið vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2022. „Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Ein verðlaun eru veitt fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarfs, önnur eru veitt framúrskarandi kennara og þau þriðju fyrir framúrskarandi þróunarverkefni, auk sérstakra hvatningarverðlauna. Sérstök athygli er vakin á því að í ár bætist við nýr verðlaunaflokkur; Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun. Verðlaun verða veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Þessi nýi flokkur er til orðinn að frumkvæði Samtaka iðnaðarins sem nú hafa gengið til liðs við þá aðila sem að verðlaununum standa.“\r\n\r\nTilnefningar þurfa að berast fyrir 1. júní. Viðurkenningarráð velur þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki til kynningar á alþjóðadegi kennara 5. október. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í nóvember og mun RÚV sýna frá afhendingunni.",
  "innerBlocks": []
}
Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna - Skessuhorn