Fréttir

true

Misjafnt gengi Vesturlandsliðanna í Lengjubikarnum í knattspyrnu um helgina

Skagamenn léku í hádeginu á laugardaginn í Akraneshöllinni gegn Lengjudeildarliði Fjölnis í Lengjubikarnum og unnu 3-1. Steinar Þorsteinsson og Gísli Laxdal Unnarsson komu Skagamönnum í 2-0 eftir rúman 20 mínútna leik áður en Baldvin Þór Berndsen minnkaði muninn fyrir gestina skömmu fyrir leikhlé. Gísli Laxdal gulltryggði sigur ÍA á 65. mínútu og eru þeir efstir…Lesa meira

true

Drangey kom til löndunar í Grundarfirði

Í gærdag kom togarinn Drangey SK 2 til hafnar í Grundarfirði til löndunar. Þetta glæsilega skip lagðist að nýja hafnarkantinum þar sem vöruflutningabílarnir biðu þess í röðum að flytja aflann norður í vinnsluna. Skipið stoppaði aðeins í nokkrar klukkustundir áður en það hélt aftur út á miðin. Alls fóru rúmlega 116 tonn á land og í…Lesa meira

true

Glímuveisla í Búðardal

Núna um liðna helgi var sannkölluð glímuveisla í Búðardal þar sem Glímufélag Dalamanna og Glímudeild Njarðvíkur sameinuðu krafta sína í Dalabúð og héldu sameiginlegar æfingar fyrir börn og ungmenni. Hópurinn æfði saman íslenska glímu og deildu þekkingu og reynslu sín á milli. Glímudeild Njarðvíkur heldur einnig uppi öflugu starfi í júdó, backhold og brasílísku Jii…Lesa meira

true

Loðna inn og mjöl út

Síðastliðinn laugardagsmorgun kom loðnuveiðiskip Brims, Svanur RE, til hafnar á Akranesi með loðnu. Á hinum hafnarkantinum lá svo við kaja Wilson Garston sem var að lesta loðnumjöli sem framleitt hefur verið á vertíðinni. Nú er loðnuvertíðin í hámarki, unnið á vöktum við hrognafrystingu og bræðslan stöðugt í gangi.Lesa meira

true

Kindurnar komu sér í skjól fyrir stærsta hvellinn

Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík er fyrir löngu orðinn landsþekktur. Þar spá menn og spekúlera, lesa jafnvel í garnir og spá um veðrið. Í fundargerð frá 4. mars síðastliðnum segir: „Við gætum nánast afritað hingað síðustu fundargerð því veðurspá marsmánaðar hljómar mjög svipað og sú síðasta, þó úrkoma hérna á Dalvík í mars verði ekki…Lesa meira

true

Að gleðjast og láta gott af sér leiða er markmið Club71

Á dögunum hélt drengja-hluti Club71 aðalfund sinn. Club71 er félagsskapur úr árgangi fólks fæddum 1971 á Akranesi og er markmiðið að sameina það að gleðjast og láta gott af sér leiða í leiðinni. Á aðalfundinn að þessu sinni mætti fjölda góðra gesta en boðið var upp á kótelettur í raspi og tilheyrandi meðlæti. Heiðursgestir voru…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Kolbeinsstaðarhrepp

Rarik kynnir að rafmagnsbilun er nú gangi í Kolbeinsstaðarhreppi, frá Hraunholti að Hallkelsstaðahlíð. „Unnið er að viðgerð og vonast er að rafmagn komi á klukkan um kl. 18 Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt Rarik Vesturlandi í síma 528-9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira

true

Tónleikar í kvöld til minningar um Hallbjörgu Bjarnadóttur

Í október á síðasta ári auglýstu Rótarýklúbbur Akraness og Tónlistarskólinn á Akranesi tónleika sem halda átti til minningar um Hallbjörgu Bjarnadóttur (1917–1997) söngkonu og frumkvöðul í djasstónlist á Íslandi. Hún ólst upp á Akranesi og átti þar heima fram á unglingsár. Tónleikarnir áttu að vera hluti af dagskrá Vökudaga. Þegar þeir dýrðardagar voru nýgengnir í…Lesa meira

true

Veik von Skagamanna orðin ansi lítil

ÍA tók á móti liði Hamars í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Heimamenn áttu möguleika á að minnka bilið á milli þeirra og Hamars niður í tvö stig með sigri og eygja þar með smá möguleika að halda sæti sínu í deildinni. Gestirnir…Lesa meira

true

Líklega ein mesta fjölgun atvinnutækifæra á Vestfjörðum í áratugi

Nú um helgina auglýsir fiskeldisfyrirtækið Arnarlax, sem er með höfuðstöðvar sínar á Bíldudal, eftir fólki í 37 laus störf. Þar af eru langflest störfin, eða 31 talsins, á Vestfjörðum og er því líklega um að ræða mestu fjölgun atvinnutækifæra á Vestfjörðum í áratugi. Óskað er eftir fólki í fjölbreytt sérfræðistörf, allt frá eldisbændum til mannauðsstjóra.…Lesa meira