Eldborgarhraun. Ljósm. mm.

Kindurnar komu sér í skjól fyrir stærsta hvellinn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík er fyrir löngu orðinn landsþekktur. Þar spá menn og spekúlera, lesa jafnvel í garnir og spá um veðrið. Í fundargerð frá 4. mars síðastliðnum segir: „Við gætum nánast afritað hingað síðustu fundargerð því veðurspá marsmánaðar hljómar mjög svipað og sú síðasta, þó úrkoma hérna á Dalvík í mars verði ekki eingöngu í föstu formi heldur aðeins blautari en hún var í febrúar. En áfram verðum við í einhverju mildasta veðrinu hérna á „Dallas“ á meðan við erum farin að vorkenna suður-, austur- og vesturhlutum landsins fyrir þá veðráttu sem yfir þá gengur.“\r\n\r\nGreinilegt er að víða er komið við í spekúleringum hópsins. Í fundargerð segir: „Við fréttum þó af kindum sem höfðu náð að fela sig í Eldborgarhrauni í Kolbeinsstaðahreppi í mest allan vetur, sem voru búnar að fá nóg af þessari veðráttu á þeim slóðum og drifu sig bara heim að Ystu-Görðum til Andrésar og Þóru um miðjan febrúar til að komast í almennilegt skjól. Og mátti Andrés bóndi víst hafa sig allan við að ná að fylgja þeim eftir heim að húsum síðasta spölinn. Enda skall á eitthvað það leiðinlegasta veður á þeim slóðum í vetur þá um nóttina. Þarna minntu þessar snjöllu skepnur okkur á að þær vita á sig veðrið oft mun betur en við mannfólkið - og ættum við því að vera mun duglegri við að læra af þeim,“ segir í fundargerð Veðurklúbbs Dalbæjar á Dalvík síðastliðinn föstudag.",
  "innerBlocks": []
}
Kindurnar komu sér í skjól fyrir stærsta hvellinn - Skessuhorn