
Lucien Christofis á vítalínunni í leiknum í gær. Ljósm. vaks
Veik von Skagamanna orðin ansi lítil
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ÍA tók á móti liði Hamars í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Heimamenn áttu möguleika á að minnka bilið á milli þeirra og Hamars niður í tvö stig með sigri og eygja þar með smá möguleika að halda sæti sínu í deildinni. Gestirnir frá Hveragerði byrjuðu betur í leiknum og komust í 2:9 en um miðjan leikhlutann voru Skagamenn komnir yfir, 15:14. Baráttan hélt áfram út fyrsta leikhlutann og Hendry Engelbrecht átti síðasta orðið fyrir ÍA þegar hann minnkaði muninn í 22:24 áður en leiktíminn rann út. Jafnt var á flestum tölum í öðrum leikhluta en Hamarsmenn tóku síðustu sjö stigin og staðan 35:42 þeim í vil í hálfleik. Skagamenn urðu fyrir miklu áfalli þegar Engelbrecht varð að fara af velli eftir rúman fimm mínútna leik í öðrum leikhluta vegna meiðsla á hné og kom hann ekki meira við sögu í leiknum.\r\n\r\nÍA gekk illa að saxa á forskotið í þriðja leikhluta, þegar þeir komust nálægt þá misstu þeir það frá sér fljótlega aftur og voru komnir 20 stigum á eftir gestunum þegar rúmlega þrjár mínútur voru eftir, 46:66. Þeir náðu þó síðan í framhaldinu aðeins að sýna tennurnar og voru búnir að minnka muninn í níu stig við lok leikhlutans, staðan 57:66 fyrir Hamar. Þegar ein og hálf mínúta var eftir af leiknum var staðan 70:80 og þá fóru Skagamenn í hápressu og náðu að minnka muninn í fjögur stig. En Hamarsmenn voru klókir, náðu að tefja og fá sóknarbrot undir lok leiksins. Tíminn var of naumur fyrir ÍA og þriggja stiga karfa Lucien Christofis kom of seint, lokastaðan 81:84 fyrir Hamarsmönnum.\r\n\r\nÞað er því ljóst að ÍA er að öllum líkindum á leið niður í 2. deild því Hamar er nú með átta stig og ÍA með tvö í deildinni og eru fjórir leikir eftir hjá ÍA og fimm hjá Hamri. Það sem gerði gæfumuninn í leiknum var lítil breidd hjá heimamönnum, of mikið var stólað á útlendingana og sumir leikmenn hálfpartinn hrukku við og vissu lítið hvað þeir áttu að gera þegar þeir fengu boltann. Þá má setja spurningarmerki við hvort að hápressa Skagamanna í lokin hefði ekki mátt koma aðeins fyrr en þetta eru aðeins vangaveltur blaðamanns. Leikmenn ÍA mega þó sannarlega eiga það að þeir börðust vel allan tímann og reyndu hvað þeir gátu til að ná sigri en þetta var einfaldlega ekki þeirra dagur.\r\n\r\nStigahæstir hjá ÍA voru þeir Cristopher Clover með 28 stig, Lucien Christofis með 20 stig og 10 fráköst og Aron Elvar Dagsson með 12 stig. Hjá Hamri var Dareial Franklin með 27 stig, Björn Ásgeir Ásgeirsson með 25 stig og Maciek Klimaszewski með 16 stig.\r\n\r\nNæsti leikur ÍA er næsta mánudag á Flúðum gegn Hrunamönnum og hefst klukkan 19:15.",
"innerBlocks": []
}