{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Núna um liðna helgi var sannkölluð glímuveisla í Búðardal þar sem Glímufélag Dalamanna og Glímudeild Njarðvíkur sameinuðu krafta sína í Dalabúð og héldu sameiginlegar æfingar fyrir börn og ungmenni. Hópurinn æfði saman íslenska glímu og deildu þekkingu og reynslu sín á milli. Glímudeild Njarðvíkur heldur einnig uppi öflugu starfi í júdó, backhold og brasílísku Jii Jitsu. Dalabörnin fengu að spreyta sig í helstu grunnatriðum þessara íþrótta undir leiðsögn þjálfara GDN. „Helgin vakti mikla lukku hjá hópnum og miklar líkur á að svona sameiginlegar æfingar verði endurteknar við fyrsta tækifæri,“ segir í frétt frá Glímufélagi Dalamanna.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"51672,51673\"]",
"innerBlocks": []
}