Líklega ein mesta fjölgun atvinnutækifæra á Vestfjörðum í áratugi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú um helgina auglýsir fiskeldisfyrirtækið Arnarlax, sem er með höfuðstöðvar sínar á Bíldudal, eftir fólki í 37 laus störf. Þar af eru langflest störfin, eða 31 talsins, á Vestfjörðum og er því líklega um að ræða mestu fjölgun atvinnutækifæra á Vestfjörðum í áratugi. Óskað er eftir fólki í fjölbreytt sérfræðistörf, allt frá eldisbændum til mannauðsstjóra. Störfin eru ekki einungis á Vestfjörðum heldur einnig í Grímsnesi, Ölfusi og Reykjavík, svo að með þessari hópráðningu hyggst fyrirtækið bæta við starfsfólki í fimm aðskildum sveitarfélögum.\r\n\r\nStarfsemi Arnarlax hefur vaxið mikið síðustu ár, en eins og kom fram í síðasta ársfjórðungsuppgjöri þá námu tekjur fyrirtækisins um fimm milljörðum íslenskra króna á tímabilinu október til desember 2021. Þessi mikli vöxtur kallar á ráðningu fleira fólks á öllum sviðum fyrirtækisins en flest störfin sem Arnarlax auglýsir um helgina eru sérfræðistörf og öll bjóða þau upp á góða tekjumöguleika.\r\n\r\nKjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax segist stoltur af þessum mikla fjölda verðmætra starfa sem fiskeldið er að skapa á Íslandi. „Þetta er ung atvinnugrein sem mikilvægt er að skapa góð skilyrði fyrir og við þurfum horfa til þess hvað við getum gert til að styrkja hana, þar sem hún getur skapað mikil verðmæti fyrir okkur ef rétt er að staðið. Það er ekki ýkja langt síðan hér voru brothættar byggðir um allt land en sem nú standa í blóma. Vandinn sem við stöndum helst frammi fyrir og er í raun lúxusvandi, snýr að því skapa nýju starfsfólki og fjölskyldum þeirra sem bestar aðstæður hvað varðar húsnæði og þjónustu. Við ætlum að vinna að þeim málum í samvinnu við sveitarfélögin og nærsamfélagið á hverjum stað,“ sagði Kjartan í fréttatilkynningu sem Arnarlax sendi frá sér.",
  "innerBlocks": []
}
Líklega ein mesta fjölgun atvinnutækifæra á Vestfjörðum í áratugi - Skessuhorn