Fréttir

true

Veist að starfsmanni við eftirlit

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu vegna atviks þar sem veist var að starfsmanni stofnunarinnar þegar hann var að sinna eftirliti. Ekki kemur fram hvar eða hvenær umrætt atvik átti sér stað. „Þetta er í þriðja sinn á sl. þremur árum þar sem máli er vísað til lögreglu vegna þess að veist er að eftirlitsmanni…Lesa meira

true

Snæfell vann þægilegan sigur á B-liði Fjölnis

Snæfell gerði sér ferð í Grafarvoginn í gærkvöldi og lék gegn Fjölni B í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Fjölnir var fyrir leikinn í neðsta sætinu ásamt Vestra með aðeins fjögur stig á meðan Snæfell er í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina. Það var þó ekki hægt að sjá mikinn mun á liðunum…Lesa meira

true

Lækka greiðsluþátttöku viðkvæmra hópa

Hámarksgreiðsla aldraðra, örorkulífeyrisþega, barna og ungmenna í fyrsta þrepi greiðsluþátttökukerfis lyfja lækkar um 20%, eða úr 14.000 kr. í 11.000 kr., samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 1. apríl. „Breytingin er í samræmi við markmið stjórnvalda um að draga úr greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu með áherslu á bæta stöðu viðkvæmra hópa og jafna aðgengi…Lesa meira

true

Auka áherslu á snjómokstur fyrir gangandi vegfarendur

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt tillögu þar sem lagt er til að snjómokstur stíga- og gangstétta í bænum verði þjónustuflokkaður og tímasettur í verklagsreglum á sambærilegan hátt og snjómokstur á götum bæjarins. Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs hefur verið falið í samráði við bæjarstjóra að útfæra tillöguna. Í greinargerð með tillögunni segir að meginmarkmið snjómoksturs sé að…Lesa meira

true

Dagur heyrnar er í dag

Heyrnar- og talmeinastöðin bendir á að í dag er Dagur heyrnar. „Í ár er einblínt á ungt fólk og fyrirbyggjandi aðgerðir til varnar heyrnarskerðingu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) hefur unnið að alþjóðastaðli öruggrar hlustunar fyrir afþreyingar- og skemmtistaði og mun setja hann í loftið á Degi heyrnar,“ segir í tilkynningu. Að hlusta á hávær hljóð skemmir taugar…Lesa meira

true

Styrktu Rauða krossinn með að ganga í hús

Þessar duglegu stelpur á myndinni söfnuðu 15.245 krónum til styrktar Rauða krossinum með því að ganga í hús í Borgarnesi. Á myndini eru frá vinstri: Guðrún Anna, Birta Mjöll, Anna Björk og Agla Dís. Á myndina vantar Rögnu sem hjálpaði einnig til við söfnunina. Rauði krossinn í Borgarnesi þakkar þeim fyrir stuðninginn.Lesa meira

true

Myndasyrpa – Blautur en brosmildur Öskudagur

Heldur rættist úr veðri þegar leið fram á öskudaginn. Krakkar í skólum á Akranesi fengu frí á hádegi og streymdu þá í sína árlegu nammi- og söngferð um bæinn. Mörg fyrirtæki höfðu opið og buðu þau velkomin í söng og gott að launum. Minna var lagt upp úr búningum að þessu sinni því börnin klæddu…Lesa meira

true

Aþena lagði Stjörnuna í spennandi leik

Hið unga lið Aþenu-UMFK tók í gær á móti liði Stjörnunnar úr Garðabæ í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta en þegar rúmlega mínúta var eftir var Aþena komin með níu stiga forskot, 20:11. Gestirnir úr Garðabæ náðu hins vegar…Lesa meira

true

Nauðsynlegt að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri ferju

Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólms síðastliðinn fimmtudag var tekið fyrir málefni Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafði óskað eftir umsögn Stykkishólmsbæjar um tillögu til þingsályktunar um kaup á nýrri Breiðafjarðarferju. Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar segist taka undir þingsályktunina en vill leggja áherslu á umhverfisvæna kosti bæði sem bráðabirgðalausn og til lengri tíma. „Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar vekur athygli á…Lesa meira

true

Skallagrímur náði sigri gegn Hamri

Skallagrímur og Hamar mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Hveragerði. Skallagrímur byrjaði mun betur í leiknum og komst í 5:17 eftir rúmlega fimm mínútna leik. Skallagrímur hélt forskotinu út fyrsta leikhlutann og staðan 20:32. Í byrjun annars leikhluta náðu heimamenn að minnka muninn í fimm stig og…Lesa meira