Myndasyrpa – Blautur en brosmildur Öskudagur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Heldur rættist úr veðri þegar leið fram á öskudaginn. Krakkar í skólum á Akranesi fengu frí á hádegi og streymdu þá í sína árlegu nammi- og söngferð um bæinn. Mörg fyrirtæki höfðu opið og buðu þau velkomin í söng og gott að launum. Minna var lagt upp úr búningum að þessu sinni því börnin klæddu sig sem betur fer eftir veðri. Þegar leið á daginn var málningin farin að renna dálítið til í rigningunni. Meðfylgjandi myndir voru teknar af nokkrum gestum sem komu á ritstjórn Skessuhorns við Garðabraut 2a á Akranesi í dag. Starfsfólkið þakkar kærlega fyrir allar heimsóknirnar og sönginn.\r\n\r\n[gallery size=\"large\" ids=\"51601,51602,51603,51604,51605,51606,51607,51608,51609,51610,51611,51612,51613,51614,51615,51616,51617,51618\"]",
  "innerBlocks": []
}
Myndasyrpa - Blautur en brosmildur Öskudagur - Skessuhorn