Dagur heyrnar er í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Heyrnar- og talmeinastöðin bendir á að í dag er Dagur heyrnar. „Í ár er einblínt á ungt fólk og fyrirbyggjandi aðgerðir til varnar heyrnarskerðingu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) hefur unnið að alþjóðastaðli öruggrar hlustunar fyrir afþreyingar- og skemmtistaði og mun setja hann í loftið á Degi heyrnar,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nAð hlusta á hávær hljóð skemmir taugar í eyrum og getur leitt til heyrnartaps eða stöðugs suðs í eyrum (tinnitus). Heyrnartap er óafturkræft. Ekki eru allir sem vita að til eru ýmis úrræði og leiðir til að minnka líkur á heyrnartapi vegna hávaða og bendir Heyrnar- og talmeinastöðin á ýmsar upplýsingar þar að lútandi.\r\n\r\n<a href=\"https://hti.is/\">Nánari upplýsingar um Heyrnar- og talmeinastöðina má sjá hér.</a>",
  "innerBlocks": []
}
Dagur heyrnar er í dag - Skessuhorn