Nauðsynlegt að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri ferju
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólms síðastliðinn fimmtudag var tekið fyrir málefni Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafði óskað eftir umsögn Stykkishólmsbæjar um tillögu til þingsályktunar um kaup á nýrri Breiðafjarðarferju. Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar segist taka undir þingsályktunina en vill leggja áherslu á umhverfisvæna kosti bæði sem bráðabirgðalausn og til lengri tíma.\r\n\r\n„Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar vekur athygli á ályktunum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, hvort sem er stjórnar samtakanna og nú síðast á haustþingi samtakanna 29. september 2021 þar sem kom m.a. fram að nauðsynlegt sé að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri ferju sem uppfylli allar nútíma öryggiskröfur og hefji siglingar eins fljótt og verð má, enda sýndi það sig síðastliðinn vetur að litlu mátti muna að illa færi þegar núverandi ferja varð vélarvana á miðjum firðinum,“ segir í umsögn bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar.",
"innerBlocks": []
}
Nauðsynlegt að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri ferju - Skessuhorn