
Snæfell vann öruggan sigur á Fjölni B. Hér fyrir leik gegn Aþenu um síðustu helgi. Ljósm. sá
Snæfell vann þægilegan sigur á B-liði Fjölnis
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Snæfell gerði sér ferð í Grafarvoginn í gærkvöldi og lék gegn Fjölni B í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Fjölnir var fyrir leikinn í neðsta sætinu ásamt Vestra með aðeins fjögur stig á meðan Snæfell er í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina. Það var þó ekki hægt að sjá mikinn mun á liðunum í fyrsta leikhluta því staðan eftir rúman fimm mínútna leik var jöfn, 8:8. Bæði lið voru að hitta mjög illa og stigaskorið eftir því en staðan við lok fyrsta leikhluta var 12:10 Fjölni í vil. Spennan hélt áfram fram í miðjan annan leikhluta og þá var staðan enn jöfn, 18:18, en þá tók Snæfell loks af skarið. Þær skoruðu tólf stig gegn aðeins fjórum stigum Fjölnis og fóru inn í hálfleikinn með átta stiga forystu, 22:30.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta breyttist staðan ekki mikið, forskot Snæfells var yfirleitt um og yfir tíu stig og var ellefu stig þegar þriðji leikhluti rann sitt skeið á enda, staðan 34:45 Snæfelli í vil. Það var síðan ekki fyrr en í fjórða leikhluta sem getumunurinn á liðunum kom í ljós. Þá lét Snæfell sverfa til stálsins og voru komnar með 20 stiga forystu um miðbik leikhlutans, 38:58. Þá gáfust Fjölnisstúlkur upp og gestirnir keyrðu yfir þær seinni hluta leikhlutans, lokastaðan stórsigur Snæfells, 45:72.\r\n\r\nSnæfell er nú í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig og í mikill baráttu við KR, Aþenu og Þór Akureyri um að komast í úrslitakeppnina en Ármann og ÍR eru örugg með sæti í henni. Snæfell á tvo leiki eftir í deildinni, gegn Hamri-Þór og ÍR og ætti að nægja að vinna annan þeirra leikja til að komast í úrslitakeppnina. Það er því hörku barátta fram undan og verður spennandi að fylgjast með hvaða lið tryggja sér sætin en deildinni lýkur um miðjan mars.\r\n\r\nStigahæstar hjá Snæfelli voru þær Rebekka Rán Karlsdóttir sem var með 27 stig, Dagný Inga Magnúsdóttir var með 13 stig og Minea Takala með 11 stig. Hjá Fjölni var Emma Hrönn Hákonardóttir með 15 stig, Heiður Karlsdóttir með 9 stig og 10 fráköst og þær Stefania Osk Olafsdottir og Stefanía Tera Hansen með 6 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Snæfells er gegn Hamri-Þór laugardaginn 12. mars í Stykkishólmi og hefst klukkan 16.",
"innerBlocks": []
}