Veist að starfsmanni við eftirlit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu vegna atviks þar sem veist var að starfsmanni stofnunarinnar þegar hann var að sinna eftirliti. Ekki kemur fram hvar eða hvenær umrætt atvik átti sér stað. „Þetta er í þriðja sinn á sl. þremur árum þar sem máli er vísað til lögreglu vegna þess að veist er að eftirlitsmanni stofnunarinnar við störf hans. Í 106. gr. almennra hegningarlaga segir að hver sá sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfs skal sæta fangelsi allt að sex árum. Jafnframt segir að beita megi sektum ef brot er smáfellt. Allt ofbeldi eða hótanir um ofbeldi í garð starfsmanna Matvælastofnunar verður kært til lögreglu,“ segir í yfirlýsingu.",
  "innerBlocks": []
}
Veist að starfsmanni við eftirlit - Skessuhorn