Stykkishólmur að vetri. Ljósm. Visit Stykkishólmur.

Auka áherslu á snjómokstur fyrir gangandi vegfarendur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt tillögu þar sem lagt er til að snjómokstur stíga- og gangstétta í bænum verði þjónustuflokkaður og tímasettur í verklagsreglum á sambærilegan hátt og snjómokstur á götum bæjarins. Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs hefur verið falið í samráði við bæjarstjóra að útfæra tillöguna. Í greinargerð með tillögunni segir að meginmarkmið snjómoksturs sé að minnka þau óþægindi sem snjór og hálka getur valdið. „Hvað varðar snjómokstur á stígum og gangstéttum kemur fram í verklagsreglunum að fyrst séu mokaðar fjölfarnar gönguleiðir sem liggja að skóla og leikskólum, því næst helstu stofnunum sveitarfélagsins. Þær áætlanir eru ekki með tímasett markmið í verklagsreglum. Þar á eftir eru aðrar fjölfarnar gönguleiðir mokaðar. Með mokstri gönguleiða er með reglunum stuðlað að góðum og öruggum samgöngum fyrir gangandi vegfarendur.“ Það er tekið fram að markmið tillögunnar sé að opna helstu leiðir sem liggja að skólum á morgnana og „setja tímasett markmið í þeim efnum sem og stuðla að góðum samgöngum fyrir gangandi vegfarendur og íbúar séu upplýstir um forgangsröðun með birtingu upplýsinga með myndrænum hætti á heimasíðu sveitarfélagsins.“",
  "innerBlocks": []
}
Auka áherslu á snjómokstur fyrir gangandi vegfarendur - Skessuhorn