{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hámarksgreiðsla aldraðra, örorkulífeyrisþega, barna og ungmenna í fyrsta þrepi greiðsluþátttökukerfis lyfja lækkar um 20%, eða úr 14.000 kr. í 11.000 kr., samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 1. apríl. „Breytingin er í samræmi við markmið stjórnvalda um að draga úr greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu með áherslu á bæta stöðu viðkvæmra hópa og jafna aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu. Framlag ríkissjóðs vegna þessarar breytingar nemur um 270 milljónum króna á ársgrundvelli,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.",
"innerBlocks": []
}