Fréttir

true

Líf og fjör á höfninni

Mikið hefur verið í gangi við Grundarfjarðarhöfn síðustu vikur og mánuði og ekkert var slegið af um liðna helgi. Alls var rúmlega tvö þúsund tonnum landað í febrúarmánuði. Fleiri myndir Tómasar Freyr fréttaritara eru í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Ryðja brautina með fersku lambakjöti

Borgfirskir bændur, sem standa að baki Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey, brugðu sér bæjarleið síðastliðinn þriðjudag. Í samráði við Icelandic Lamb og matreiðslumanninn Gísla Matthías Auðunsson á Skál í mathöllinni á Hlemmi, voru kynntir réttir sem unnir voru úr ófrosnu dilkakjöti af nýslátruðu. Fram til þessa hefur ekki verið hægt að kaupa ferskt lambakjöt utan hefðbundinnar…Lesa meira

true

Hárhús Kötlu hættir og Hár studio tekur við

Eftir tæplega 37 ára rekstur hársnyrtistofunnar Hárhúss Kötlu hefur eigandinn, Katla Hallsdóttir, ákveðið að leggja niður reksturinn og láta húsnæðið í hendur hársnyrtistofunnar Hár studio ehf. sem hefur haft aðsetur síðustu ár í næsta húsi á Stillholti 16. Katla hefur þó ekki lagt skærin á hilluna því hún ætlar að leigja aðstöðu hjá eigendum Hár…Lesa meira

true

Námskeið í boði fyrir eldri borgara á Akranesi

Símenntunarmiðstöð Vesturlands og FEBAN munu á næstunni bjóða eldri borgurum á Akranesi (60 ára og eldri) upp á námskeið í tölvulæsi, næringu og slökun. Námskeiðin eru öll ókeypis fyrir þátttakendur. Námskeið í tölvulæsi er fyrst á dagskrá. Alls verður boðið upp á námskeið fyrir sex hópa í tölvulæsi, eða 48 þátttakendur og kennsla fyrir fyrsta…Lesa meira

true

Fiskvegur í jarðgöngum við Barnafoss skal fara í umhverfismat

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fiskvegur í jarðgöngum við Barnafoss í Borgarfirði skuli háður mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021. Fyrirhuguð framkvæmd felst í að gera jarðgöng sunnan Hvítár við Barnafoss. Erindið er lagt fram af Verkís fyrir hönd Veiðifélags Hvítár og Norðlingafljóts en Stefán Stefánsson í Fljótstungu er skrifaður fyrir fyrirspurninni. Í…Lesa meira

true

Minjavernd hefur selt Hótel Flatey

Minjavernd hefur selt Hótel Flatey á Breiðafirði. Í frétt Vísis um söluna kemur fram að bæði rekstur og húsakostur hafi verið seldur. Kaupendurnir eru ekki nefndir en haft eftir Þorsteini Bergssyni framkvæmdastjóra Minjaverndar að kaupendurnir áformi að halda áfram gistirekstri og ferðaþjónustu á svæðinu. Gengið var frá kaupsamningi í lok janúar. Hótelið sjálft, sem heitir…Lesa meira

true

Veist að starfsmanni við eftirlit

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu vegna atviks þar sem veist var að starfsmanni stofnunarinnar þegar hann var að sinna eftirliti. Ekki kemur fram hvar eða hvenær umrætt atvik átti sér stað. „Þetta er í þriðja sinn á sl. þremur árum þar sem máli er vísað til lögreglu vegna þess að veist er að eftirlitsmanni…Lesa meira

true

Snæfell vann þægilegan sigur á B-liði Fjölnis

Snæfell gerði sér ferð í Grafarvoginn í gærkvöldi og lék gegn Fjölni B í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Fjölnir var fyrir leikinn í neðsta sætinu ásamt Vestra með aðeins fjögur stig á meðan Snæfell er í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina. Það var þó ekki hægt að sjá mikinn mun á liðunum…Lesa meira

true

Lækka greiðsluþátttöku viðkvæmra hópa

Hámarksgreiðsla aldraðra, örorkulífeyrisþega, barna og ungmenna í fyrsta þrepi greiðsluþátttökukerfis lyfja lækkar um 20%, eða úr 14.000 kr. í 11.000 kr., samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 1. apríl. „Breytingin er í samræmi við markmið stjórnvalda um að draga úr greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu með áherslu á bæta stöðu viðkvæmra hópa og jafna aðgengi…Lesa meira

true

Auka áherslu á snjómokstur fyrir gangandi vegfarendur

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt tillögu þar sem lagt er til að snjómokstur stíga- og gangstétta í bænum verði þjónustuflokkaður og tímasettur í verklagsreglum á sambærilegan hátt og snjómokstur á götum bæjarins. Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs hefur verið falið í samráði við bæjarstjóra að útfæra tillöguna. Í greinargerð með tillögunni segir að meginmarkmið snjómoksturs sé að…Lesa meira