Lovísa, Katla, Marín og Helena á Hár studio. Ljósm. vaks

Hárhús Kötlu hættir og Hár studio tekur við

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eftir tæplega 37 ára rekstur hársnyrtistofunnar Hárhúss Kötlu hefur eigandinn, Katla Hallsdóttir, ákveðið að leggja niður reksturinn og láta húsnæðið í hendur hársnyrtistofunnar Hár studio ehf. sem hefur haft aðsetur síðustu ár í næsta húsi á Stillholti 16. Katla hefur þó ekki lagt skærin á hilluna því hún ætlar að leigja aðstöðu hjá eigendum Hár studio, þeim Marín Rut Elíasdóttur og Helenu Rut Steinsdóttur. Þá verður Lovísa Barðadóttir, sem starfaði hjá Kötlu, einnig með aðstöðu á Hár studio.\r\n\r\nBlaðamaður Skessuhorns kíkti við á mánudaginn á síðasta degi Hárhúss Kötlu þar sem iðnaðarmenn voru á fullu svo að hægt yrði að opna daginn eftir með pompi og prakt undir nafni Hár studio. Katla hóf rekstur Hárhúss Kötlu í ágúst árið 1986 í húsnæði á Suðurgötu 85 en flutti tíu árum síðar á Stillholt 14 og hefur því verið þar með rekstur í tæp 26 ár. En hvað kom til að Katla tók þá ákvörðun að hætta rekstrinum? „Mér fannst kominn tími á að fá yngra fólk á stofuna og minnka við mig í vinnu því maður er því miður ekkert að yngjast. Þá opnaðist tækifæri fyrir mig því Marín og Helena voru að leita sér að stærra húsnæði því það var orðið of lítið fyrir þeirra starfsemi. Við ræddum saman og þetta small allt hjá okkur á mjög stuttum tíma. Það eru spennandi tímar í hárgreiðslunni á Akranesi og við erum allar mjög spenntar að taka þátt í þessu saman.“\r\n\r\nMarín og Helenu líst mjög vel á samstarfið enda þekkjast þær vel. Helena var nemi hjá Kötlu og Marín var að vinna með þeim í mörg ár á stofunni á sínum tíma. Þá segja þær að það sé frábært tækifæri að komast í húsnæði þar sem allt er til alls fyrir hársnyrtistofu. „Eina sem þarf að gera er að breyta þessu eftir okkar höfði og kannski gera þetta aðeins nýtískulegra. Þá er mikill munur að hafa alla þessa glugga sem er mikil breyting fyrir okkur því við vorum áður í gluggalausu húsnæði. Þá er þetta geggjuð staðsetning hérna og með nóg af bílastæðum sem skiptir einnig mjög miklu máli. Okkur líst rosalega vel á þetta, það er alltaf gaman í vinnunni og að fá að hitta fólk. Við hlökkum til að taka á móti nýjum og gömlum viðskiptavinum og erum spenntar að komast á nýjan stað með nýjum tækifærum.“",
  "innerBlocks": []
}