{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Minjavernd hefur selt Hótel Flatey á Breiðafirði. <a href=\"https://www.visir.is/g/20222229808d/buid-ad-selja-hotel-flatey-a-breidafirdi\">Í frétt Vísis um söluna</a> kemur fram að bæði rekstur og húsakostur hafi verið seldur. Kaupendurnir eru ekki nefndir en haft eftir Þorsteini Bergssyni framkvæmdastjóra Minjaverndar að kaupendurnir áformi að halda áfram gistirekstri og ferðaþjónustu á svæðinu. Gengið var frá kaupsamningi í lok janúar.\r\n\r\nHótelið sjálft, sem heitir Stóra pakkhús, var byggt árið 1908 en auk þess er um að ræða Samkomuhúsið, byggt árið 1900, og Eyjólfspakkhús frá 1908. Árið 2019 voru svo byggð starfsmannahús ásamt geymslu og bílskúr. Alls er húsakosturinn 678 fermetrar.\r\n\r\nHúsin hafa verið í eigu Minjaverndar frá árinu 2007 sem hefur staðið að umfangsmikilli endurbyggingu húsanna. Endurbótum eldri húsanna lauk á árunum 2003 til 2007 og 2018 voru byggð hús þar sem starfsmenn gætu gist. Húsin voru áður í eigu Flateyjarhrepps sem fékk þau úr þrotabúi gamla Íslandsbanka. Reykhólahreppur átti forkaupsrétt að eignunum en sveitarstjórn tók þá ákvörðun að nýta hann ekki.",
"innerBlocks": []
}