Barnafoss er ofan við Hraunfossa í Hvítá. Ljósm. west.is

Fiskvegur í jarðgöngum við Barnafoss skal fara í umhverfismat

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fiskvegur í jarðgöngum við Barnafoss í Borgarfirði skuli háður mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021. Fyrirhuguð framkvæmd felst í að gera jarðgöng sunnan Hvítár við Barnafoss. Erindið er lagt fram af Verkís fyrir hönd Veiðifélags Hvítár og Norðlingafljóts en Stefán Stefánsson í Fljótstungu er skrifaður fyrir fyrirspurninni. Í greinargerð vegna verkefnisins kemur fram að gert sé ráð fyrir að neðri endi fiskvegarins opnist út í Hvítá um 70 metra neðan við göngubrú skammt frá Barnafossi. Frá þeim stað mun fiskvegurinn liggja í jarðgöngum í bergi austur með Hvítá og opnast að ofanverðu um 40 m ofan við Barnafoss. Jarðgöngin verða á um 10 metra dýpi. Áætlað að göngin verði um 240 metra löng, 3,6 m á breidd og 4,1 m á hæð. Fiskvegurinn verður svokallaður raufastigi og til hliðar við hann verður göngubraut til viðhalds og eftirlits. Þrep í fiskvegi verða steinsteypt með járnbentri steypu.\r\n\r\nÍ fyrirspurn framkvæmdaraðila kemur fram að tilgangur framkvæmdarinnar sé að gera Hvítá laxgenga ofan við Barnafoss með það að markmiðið að koma upp sjálfbærum laxastofni í Norðlingafljóti. „Framkvæmdin mun ekki hafa áhrif á eðli eða ásýnd fossanna á svæðinu og ekki á náttúrulega þróun Barnafoss. Framkvæmdin muni ekki hafa neikvæð áhrif á þau verðmæti sem friðlýsingu náttúruvættisins er ætlað að vernda. Göngur á laxi í Norðlingafljót munu ekki hafa áhrif á stofna bleikju og urriða ofan Bjarnafoss, sem hafa aðgang að vatnasvæði Arnarvatnsheiðar. Aukin framleiðni Norðlingafljóts opnar nýja tekjumöguleika á svæðinu og er framkvæmdin líkleg til að hafa jákvæð áhrif á efnahag nærsamfélagsins,“ segir í fyrirspurn framkvæmdaraðila um matsskyldu.\r\n\r\n<strong>Líkleg til að hafa umhverfisáhrif</strong>\r\n\r\nÁkvörðun Skipulagsstofnunar er afdráttarlaus, en í niðurstöðu segir: „Á grundvelli fyrirliggjandi gagna er það niðurstaða Skipulagsstofnunar að fyrirhuguð framkvæmd er líkleg til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin háð mati á umhverfisáhrifum. Samkvæmt 30. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana má kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er til 1. apríl 2022.“ Skipulagsstofnun rökstyður ákvörðun sína m.a. með því að mikill fjöldi ferðamanna heimsæki Hraunfossa og Barnafossa ár hvert auk þess sem um er að ræða friðlýst náttúruvætti. „Möguleg áhrif framkvæmda varða því mikinn fjölda fólks. Um er að ræða óafturkræfa framkvæmd. Að mati Skipulagsstofnunar er mikil óvissa um áhrif framkvæmdarinnar en í ljósi stærðar, hönnunar og umfangs framkvæmdarinnar og verndargildis svæðisins eru þau líkleg til að verða umtalsverð.“",
  "innerBlocks": []
}
Fiskvegur í jarðgöngum við Barnafoss skal fara í umhverfismat - Skessuhorn