
Húsnæði eldri borgara á Akranesi á Dalbraut 4. Ljósm. vaks
Námskeið í boði fyrir eldri borgara á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Símenntunarmiðstöð Vesturlands og FEBAN munu á næstunni bjóða eldri borgurum á Akranesi (60 ára og eldri) upp á námskeið í tölvulæsi, næringu og slökun. Námskeiðin eru öll ókeypis fyrir þátttakendur. Námskeið í tölvulæsi er fyrst á dagskrá. Alls verður boðið upp á námskeið fyrir sex hópa í tölvulæsi, eða 48 þátttakendur og kennsla fyrir fyrsta hópinn hefst næstkomandi miðvikudag, þann 9. mars klukkan 16. Kennt verður á miðvikudögum og fimmtudögum klukkan 16 til 18, alls fjögur skipti, tvær klukkustundir í senn í húsnæði Félags eldri borgara að Dalbraut 4. Þetta kemur fram í færslu á facebook síðu FEBAN.\r\n\r\nÍ námskeiðinu fá þátttakendur kynningu á ýmsum þáttum tölvulæsis. Í fyrsta hluta er fjallað um rafræn skilríki og notkun þeirra á þeim síðum sem krefjast þeirra. Annar hluti snýr að notkun heimabanka og stafrænum viðskiptum í netverslunum þar sem einnig er fjallað um öryggi í fjármálaviðskiptum á netinu. Þriðji hluti snýr að samfélagsmiðlum og efnisveitum og hluti af því er nethegðun og rýni í efni, þ.e. að geta borið kennsl á falsfréttir, auglýsingar, falska notendur og svik á netinu. Lokahlutinn snýr að notkun tölvupósts, rafrænna skilaboða, ýmissa nýtilegra forrita og smáforrita og netleitar.\r\n\r\nFyrsti hópurinn verður nokkurs konar prufuhópur og því auglýsir FEBAN aðeins eftir þátttakendum á Facebook. Aðeins er pláss fyrir átta þátttakendur á hverju námskeiði, og því er mikilvægt að þeir sem skrá sig skuldbindi sig í að mæta í öll fjögur skiptin en taki ekki pláss frá öðrum. Þeir sem skrá sig eftir að fullt er orðið í hópinn verða í forgangi á næstu námskeið en þurfa þó aftur að skrá sig þegar þar að kemur, til að staðfesta skráningu sína. Tímasetningar á þeim námskeiðum eru ekki fast mótaðar en reiknað er með að hafa eitt til tvö námskeið í viðbót á vorönn og svo hin í haust.\r\n\r\nÞegar þessu námskeiði lýkur verður síðan boðið upp á næringarfræðinámskeið og svo eftir páska verða einn til tveir hópar í viðbót í tölvulæsi og einnig verður boðið upp á slökunarnámskeið. Nánari upplýsingar um þau námskeið verða gefnar síðar.\r\n\r\nÞeir sem vilja skrá sig geta gert það inn á facebook síðu FEBAN með því að skrifa athugasemd við færsluna og gefa upp farsímanúmer. Leiðbeinandinn, Ívar Örn Reynisson, frá Símenntunarmiðstöð Vesturlands, mun síðan hafa samband við þátttakendur í síma til að fá frekari upplýsingar og gefa frekari leiðbeiningar.",
"innerBlocks": []
}