Fréttir

true

Guðlaugur Þór í formannsslag í Sjálfstæðisflokknum

Borgnesingurinn Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- og loftslagsráðherra tilkynnti á fundi í Valhöll í hádeginu í dag að hann hyggist bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins um næstu helgi. Þar með leggur hann allt undir, ef svo má segja, um pólitíska framtíð sína. Fram til þessa hafði einungis Bjarni Benediktsson sitjandi formaður lýst…Lesa meira

true

Úrskurðarnefnd ógildir byggingarleyfi við Nesveg 22a

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi á föstudaginn úr gildi byggingarleyfi fyrir væntanlega þangskurðarverksmðju Asco Harvester við Nesveg 22a í Stykkishólmi, en leyfið var veitt 14. október síðastliðinn. Nefndin telur að umrædd bygging sé ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag og að deiliskipuleggja hefði þurft svæðið áður en byggingarleyfið var gefið út. Byggir niðurstaða nefndarinnar á…Lesa meira

true

Stórsýning opnuð á Höfða á föstudaginn

Síðdegis á föstudaginn var opnuð sýning þriggja listamanna á Höfða; hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi en listamennirnir sem voru með verk á sýningunni voru þau Brynja Jóhannsdóttir, Gerður Guðjónsdóttir og Sigurður Mikael Jónsson. Er sýningin liður í lista- og menningarhátíðinni Vökudögum sem nú standa yfir og verður opin alla Vökudagana á meðan húsið er opið.…Lesa meira

true

Hætti við að fara í hjúkrunarfræði en er nú nýr framkvæmdastjóri Brákarhlíðar

Rætt við Ingu Dóru Halldórsdóttur sem nýlega tók við starfi framkvæmdastjóra hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi. Hún lætur af störfum 1. nóvember sem framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands eftir 16 ár í því starfi. Inga Dóra er alin upp á bænum Jarðbrú í Svarfaðardal til 15 ára aldurs. Foreldrar hennar bjuggu þar með blandaðan búskap, en…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði á móti Hamri

Skallagrímur tók á móti Hamri í Fjósinu í Borgarnesi í gærkvöldi og varð að sætta sig við tap eftir þrjá sigurleiki í röð í deildinni. Hamarsmenn komust í tíu stiga forystu eftir aðeins þriggja mínútna leik og heimamenn hálf vankaðir í byrjun leiks. Þeir náðu síðan að girða sig í brók undir lok fyrsta leikhluta…Lesa meira

true

Skagamenn unnu Fjölni í spennuleik

Fjölnir og ÍA mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og var viðureignin í Dalhúsum í Grafarvogi. Skagamenn byrjuðu af miklum krafti í leiknum og voru komnir í tólf stiga forystu eftir rúmar fimm mínútur í fyrsta leikhluta, 6:18. Fjölnismenn komu síðan aðeins til baka í seinni hlutanum og minnkuðu muninn í sex…Lesa meira

true

Bjartur Bjarmi genginn til liðs við Aftureldingu

Afturelding úr Mosfellsbæ sem leikur í Lengjudeildinni hefur samið við Bjart Bjarma Barkarson til næstu tveggja ára en hann kemur til félagsins frá Víkingi Ólafsvík. Bjartur Bjarmi er tvítugur en hann hefur á ferlinum bæði leikið sem kant- og miðjumaður. Í sumar var Bjartur Bjarmi fyrirliði hjá Víkingi Ólafsvík þar sem hann skoraði átta mörk…Lesa meira

true

Aron og Embla eru vinsælustu nöfnin

Aron var vinsælasta fyrsta eiginnafn meðal nýfæddra drengja á síðasta ári en þar á eftir komu Jökull og Alexander. Í sætunum þar á eftir koma Kári, Emil, Jón, Óliver, Mikael, Matthías og Elmar. Embla var vinsælasta nafnið meðal nýfæddra stúlkna, svo koma nöfnin Emilía og Sara. Í sætunum þar á eftir eru Sóley, Matthildur, Aþena,…Lesa meira

true

Elsta deildin flutt í nýja leikskólann við Asparskóga

Í morgun hófst leikskólastarf í nýja leikskólanum við Asparskóga á Akranesi þegar elstu börnin voru flutt í hluta nýbyggingarinnar en lokið var við að ganga frá tveimur deildum leikskólans og stórum hluta leikskólalóðarinnar í þessari viku. Núverandi Garðasel er þriggja deilda skóli en gert er ráð fyrir að þegar flutt verði í nýja skólann líklega…Lesa meira

true

Hin árlega garðfuglakönnun Fuglaverndar hefst á sunnudaginn

Tilgangur garðfuglakönnunar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðum á Íslandi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir ekki máli þó fólk byrji aðeins seinna að telja eða hætti fyrr – aðalatriðið er að vera með.…Lesa meira