Fréttir

true

Skora á til þess bærar stofnanir að beita sér harðar í dýravelferðarmálum

Á fundi í umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar 20. október síðastliðinn var áfram fjallað um dýravelferðarmál og framvindu þeirra mála í sveitarfélaginu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum frá því í sumar. Í bókun nefndarinnar frá því í ágúst kom fram að nefndin telur ferlið eins og það er hjá Matvælastofnun í dag vera of…Lesa meira

true

Heldur myndlistarsýningu á Bókasafninu í Borgarnesi – myndband

Matthías Margrétarson er ungur myndlistamaður sem heldur nú sýningu með verkum sínum á Bókasafninu í Borgarnesi. Matti eins og hann er yfirleitt kallaður bjó í Borgarnesi á sínum yngri árum en hann býr nú og starfar í Röros í Noregi. Matti starfar við leirgerð ásamt því að teikna tölvugerðar myndir og mála olíumálverk sem nú…Lesa meira

true

Vökudagar settir og fjölbreytt mennningarveisla hafin

Setning Vökudaga á Akranesi fór fram í Tónbergi síðdegis í gær og fékk bæjarstjórinn Sævar Freyr Þráinsson þann heiður að setja hátíðina. Veittar voru umhverfisviðurkenningar og Menningarverðlaun Akraness afhent, eins og fram kemur í fréttum okkar hér í morgun. Þá voru tónlistaratriði frá nemendum Tónlistarskóla Akraness á dagskrá gestum til skemmtunar. Að lokinni setningu hófst…Lesa meira

true

FISK styrkir Skíðasvæði Snæfellsness

Skíðasvæði Snæfellsness hlaut á dögunum veglegan styrk til snjótroðarakaupa. Það var Fisk seafood sem gaf skíðadeildinni tvær milljónir til minningar um fyrrum eigendur Farsæls útgerðarinnar í Grundarfirði, en það voru bræðurnir Pétur, Halldór og Hermann Sigurjónssynir sem stofnuðu hana um miðja síðustu öld. Það var Hildur Sæmundsdóttir eiginkona Sigurjóns Halldórssonar fyrrum skipstjóra Farsæls SH sem…Lesa meira

true

Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar afhentar

Í gærkvöldi afhenti skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar umhverfisverðlaun kaupstaðarins fyrir árið 2022. Fór athöfnin fram í Tónbergi. Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar og Helena Guttormsdóttir lektor Landbúnaðarháskóla Íslands skoðuðu þær tilnefningar sem bárust og fóru í vettvangsferð um bæinn nú í september til nánari skoðunar. Markmiðið var að vinna með fagurfræði, fjölbreytileika, samtal við almenningsrými…Lesa meira

true

Kellingar handhafar menningarverðlauna Akraneskaupstaðar

Menningar- og listahátíðin Vökudagar voru settir á Akranesi í gær. Þetta er í 20. skipti sem hátíðin er haldin. Við þetta tilefni voru menningarverðlaun Akraness 2022 afhent. ,,Kellingar“ er heiti hóps kvenna sem undanfarin ár hefur fært bæjarbúum fróðleik og skemmtun í göngum um bæinn. Þær Guðbjörg Árnadóttir, Hallbera Jóhannesdóttir og Halldóra Jónsdóttir hafa skrifað…Lesa meira

true

Tónleikar í einu minnsta húsi á Akranesi

Hársnyrtistofa Hinriks stendur við Vesturgötu 57 á Akranesi og þar hefur hún verið samfleytt í rekstri frá árinu 1965 eða í 57 ár. Rakarastofan er elsta rakarastofa landsins sem hefur starfað í sama húsnæði en hún hefur verið rekin í þessu litla húsi frá árinu 1937 þegar Árni B. Sigurðsson opnaði þar stofu. Geirlaugur sonur…Lesa meira

true

Hafnarlífið – Myndasyrpa

Eins og undanfarin misseri hefur verið mikið að gera við Grundarfjarðarhöfn enda lífæð bæjarfélagsins. Margir bátar hafa komið inn til löndunar að undanförnu og er heildarafli frá 1. september kominn yfir fimm þúsund tonn.Lesa meira

true

HMS flytur fimm störf norður

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hyggst efla starfsemi sína enn frekar á landsbyggðinni með því að færa verkefni á sviði brunabótamats á starfsstöð HMS á Akureyri. Fimm opinber sérfræðistörf, þar af eitt stjórnunarstarf, verða flutt til Akureyrar og nýtt teymi stofnað um verkefnin. Framvegis verður 21 stöðugildi á starfsstöð HMS á Akureyri. Breytingarnar eru hluti af…Lesa meira