Frá afhendingu verðlaunanna. F.v. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Guðbjörg Árnadóttir, Hallbera Jóhannesdóttir, Halldóra Jónsdóttir og Guðríður Sigurjónsdóttir, formaður menningar- og safnanefndar. Ljósm. akranes.is

Kellingar handhafar menningarverðlauna Akraneskaupstaðar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Menningar- og listahátíðin Vökudagar voru settir á Akranesi í gær. Þetta er í 20. skipti sem hátíðin er haldin. Við þetta tilefni voru menningarverðlaun Akraness 2022 afhent. ,,Kellingar“ er heiti hóps kvenna sem undanfarin ár hefur fært bæjarbúum fróðleik og skemmtun í göngum um bæinn. Þær Guðbjörg Árnadóttir, Hallbera Jóhannesdóttir og Halldóra Jónsdóttir hafa skrifað handrit að göngunum og fengið til liðs við sig hóp kvenna við flutning. Kellingarnar hafa jafnframt notið liðsinnis Auðar Sigurðardóttur sem titluð hefur verið hirðskáld hópsins.\r\n\r\nUpphaf þessa starfs Kellingana var samstarf Bókasafns Akraness og Leikfélagsins Skagaleikflokksins, en það hlaut styrk frá Framkvæmdarnefnd um 100 ára kosningarrétt kvenna. Var fyrsta gangan farin 17. júní 2015 og nefndist ,,Hvaða kellingar?“ Í henni var sagt frá nokkrum merkum konum á Akranesi í upphafi kvennabaráttunnar. Síðan hafa verið farnar göngur á hverju ári þar sem sagt hefur verið frá mönnum og málefnum í áranna rás á Akranesi. „Er því vel við hæfi að Kellingar hljóti Menningarverðlaunin 2022,“ segir í umsögn menningar- og safnanefndar.",
  "innerBlocks": []
}
Kellingar handhafar menningarverðlauna Akraneskaupstaðar - Skessuhorn