
Halli Hinna í gættinni á stofunni. Ljósm. vaks
Tónleikar í einu minnsta húsi á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hársnyrtistofa Hinriks stendur við Vesturgötu 57 á Akranesi og þar hefur hún verið samfleytt í rekstri frá árinu 1965 eða í 57 ár. Rakarastofan er elsta rakarastofa landsins sem hefur starfað í sama húsnæði en hún hefur verið rekin í þessu litla húsi frá árinu 1937 þegar Árni B. Sigurðsson opnaði þar stofu. Geirlaugur sonur Árna tók síðan við af föður sínum til ársins 1965 er Hinrik Haraldsson keypti aðstöðuna og hóf rekstur stofunnar 1. október það ár. Húsið sem rakarastofan er í var byggt í kringum 1924 og var fyrsta símstöð bæjarins rekin þar á árunum 1925-1934 af Valdísi Böðvarsdóttur.\r\n\r\nÁ tónlistarhátíðinni Heima-Skaga mun tónlistarkonan Lay Low halda tónleika í þessu sögufræga húsi. Haraldur Hinriksson, sonur Hinna, tók við stofunni af föður sínum árið 2020 eftir að hafa flutt heim frá Danmörku. Halli Hinna, eins og hann er alltaf kallaður, segir að Óli Palli hafi hringt í sig og komið með þá sniðugu hugmynd að halda tónleika á stofunni. Upphaflega var meiningin að Guðrún Árný ætti að koma þarna fram en því var síðan breytt og Lay Low talin henta betur við stemninguna. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 22 laugardaginn 5. nóvember og segir Halli að honum lítist stórkostlega á þessa tónleika, það sé spennandi að vera með tónleika í svona litlu húsi en stofan er um 20 fermetrar að stærð. „Ég man í eitt skipti fyrir ansi mörgum árum síðan rétt fyrir jól þegar yfir 20 manns biðu hér eftir klippingu. Það munaði ekki miklu að sá gamli tæki til fótanna og léti sig hverfa, alveg búinn á því eftir alla törnina en hann lét sig hafa það. Það er ljóst að það komast ekki fleiri en kannski 10-15 manns hérna inni en það kemur allt í ljós. Það verður virkilega gaman að taka þátt í þessu, ég hlakka mikið til að hitta tónleikagesti og eiga góða stund með þeim sem koma og kíkja á okkur,“ segir spenntur Halli Hinna að lokum.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}