Verðlaunahafar, bæjarstjóri og nefndarfólk. Ljósm. akranes.is

Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar afhentar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gærkvöldi afhenti skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar umhverfisverðlaun kaupstaðarins fyrir árið 2022. Fór athöfnin fram í Tónbergi. Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar og Helena Guttormsdóttir lektor Landbúnaðarháskóla Íslands skoðuðu þær tilnefningar sem bárust og fóru í vettvangsferð um bæinn nú í september til nánari skoðunar. Markmiðið var að vinna með fagurfræði, fjölbreytileika, samtal við almenningsrými og vekja í víðum skilningi athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð bæjarins máli. Unnið var með fjögur þemu og voru þau eftirfarandi:\r\n\r\n<strong>Falleg einbýlishúsalóð</strong>\r\n\r\nÞar var horft til umhirðu húss og lóðar, hönnunar, notkunarmöguleika og fjölbreytileika í gróðri. Í þessum flokki var Bakkatún 4 valið fyrir skemmtilegan garð með mikla tegundafjölbreytni og í umsögn segir að lóðin standi á sögulegum grunni á horni Vesturgötu og Bakkatúns. „Vel hirt lóð og snyrtileg, búið að klippa limgerði niður og opna inn á lóðina. Falleg aðkoma og forgarður við innkeyrslu, fjölbreyttur gróður og fyrirmyndar lóð.“ Eigendur eru Brynhildur Björnsdóttir og Guðmundur Sigurbjörnsson.\r\n\r\n<strong>Falleg aðkoma</strong>\r\n\r\nÍ þessum flokki var horft til samspils milli götu, húss og hönnunar þar sem framhliðar húsa eru andlit heimilisins. Húsið á Esjubraut 18 var valið í þessum flokki fyrir fallega aðkomu að húsi þar sem forgarður myndar skemmtilegt samspil milli húss og götu með fjölbreyttum gróðri. Eigandi er Einar Ottó Jónsson.\r\n\r\n<strong>Tré ársins</strong>\r\n\r\nÍ flokknum tré ársins er horft til útlits og menningarlegs gildis einstakra trjáa. Tré ársins stendur við Vesturgötu 63 og í umsögn segir að tréð sé staðsett í elsta hluta bæjarins og hafi mátt þola ýmislegt í gegnum tíðina. „Fallegt sitkagreni sem stendur framan við gamalt steinhús og gefur húsinu, framlóð þess og götumyndinni sérstakan svip. Tréð veitir húsinu ákveðna sérstöðu og ásýnd þess minnir á gamla tímann. Gott merki um það að gróður getur vel þrifist á Skaganum.“\r\n\r\n<strong>Samfélagsverðlaun</strong>\r\n\r\nAkraneskaupstaður veitir samfélagsverðlaun og eru þau veitt hópum eða einstaklingum sem hafa unnið óeigingjarnt starf í þágu umhverfisins. Þau fékk Katrín Leifsdóttir yfirplokkari en hún fer fyrir hópi fólks sem er umhugað um bæinn og vilja taka til hendinni við að halda honum fallegum og snyrtilegum.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"57459,57460,57461,57462\"]",
  "innerBlocks": []
}
Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar afhentar - Skessuhorn