
Hross. Myndin tengist umræddu máli ekki. Ljósm. FT.
Skora á til þess bærar stofnanir að beita sér harðar í dýravelferðarmálum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi í umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar 20. október síðastliðinn var áfram fjallað um dýravelferðarmál og framvindu þeirra mála í sveitarfélaginu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum frá því í sumar. Í bókun nefndarinnar frá því í ágúst kom fram að nefndin telur ferlið eins og það er hjá Matvælastofnun í dag vera of þungt í vöfum og telur mikilvægt að verkferlar verði skoðaðir. Á fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar 20. okbóber segir að liðnar séu sex vikur frá því nefndin fjallaði síðast um málið og á þeim tíma hafa reglulega birst í fjölmiðlum fréttir af umræddu máli og jafnvel myndir af hrossum sem eru illa haldin og talið tvísýnt um að lifi af veturinn. Fram hefur komið að málið sé í ferli hjá MAST sem m.a. gerði kröfu um að hrossunum yrði hleypt út og að þau yrðu fóðruð með heyi samhliða. Þá segir í bókun nefndarinnar að samkvæmt fréttum 19. október sl. hafi 13 hross verið felld vegna óviðunandi holdastigs þeirra. Öðrum hrossum hafi verið skilað til umráðamanns en vísbendingar eru um að enn sé nokkur fjöldi hrossa í viðkvæmu ástandi og skulu njóta sérstakrar umhirðu sbr. tilkynningu á vef Matvælastofnunar dags. 19. október 2022.\r\n\r\n„Nefndin ítrekar að ferlar sem MAST vinnur eftir, virðast gefa mikið svigrúm fyrir búfjáreigendur, og telur nefndin að ekki sé gengið nægjanlega hart fram í að framfylgja þeim fyrirmælum sem búfjáreigendum eru gefin í málum sem þessum. Það er augljóst að umfjöllun um slæma meðferð á skepnum er til þess fallin að varpa neikvæðu ljósi á íslenskan landbúnað og sveitarfélagið Borgarbyggð. Þá getur umfjöllun sem þessi valdið talsverðum fjárhagslegum skaða og skaðað ímynd lands og þjóðar. Almenningur hefur verulegar áhyggjur af afdrifum þeirra dýra sem búa við slíkar aðstæður, auk þess sem verulegrar reiði gætir í garð þeirrar eftirlitsstofnunar sem sinnir þessum málum.“\r\n\r\nLoks segir í bókun umhverfis- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar: „Nefndin skorar á Matvælaráðuneytið, Bændasamtök Íslands og Landssamband hestamannafélaga að beita sér í þessu máli og öðrum málum er varða dýravelferð. Nefnin felur deildarstjóra umhverfis- og framkvæmdamála að senda bókun nefndarinnar á eftirfarandi aðila: Matvælaráðuneytið, Matvælastofnun, Bændasamtök Íslands, Landssamband hestamannafélaga og til þingmanna NV-kjördæmis.“",
"innerBlocks": []
}