{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Aron var vinsælasta fyrsta eiginnafn meðal nýfæddra drengja á síðasta ári en þar á eftir komu Jökull og Alexander. Í sætunum þar á eftir koma Kári, Emil, Jón, Óliver, Mikael, Matthías og Elmar.\r\n\r\nEmbla var vinsælasta nafnið meðal nýfæddra stúlkna, svo koma nöfnin Emilía og Sara. Í sætunum þar á eftir eru Sóley, Matthildur, Aþena, Katla, Guðrún, Saga og Eva.\r\n\r\n<strong>Jón og Guðrún</strong>\r\n\r\nAlgengustu fyrstu eiginnöfnin á landinu eru fæst á þeim lista sem nýskírðum börn hefur verið gefið. Með algengustu fyrstu eiginnöfnin er átt við alla núlifandi Íslendinga miðað við 27. október síðastliðinn. Algengustu nöfnin eru í þessari röð: Anna, Jón, Guðrún, Sigurður, Guðmundur, Kristín, Sigríður, Gunnar, Margrét og Helga. Það eru því einungis Jón og Guðrún sem enn halda vinsældum sínum af gömlum íslenskum nöfnum.",
"innerBlocks": []
}