
Börnin virðast una sér vel á nýja staðnum. Ljósm. af FB síðu Garðasels
Elsta deildin flutt í nýja leikskólann við Asparskóga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í morgun hófst leikskólastarf í nýja leikskólanum við Asparskóga á Akranesi þegar elstu börnin voru flutt í hluta nýbyggingarinnar en lokið var við að ganga frá tveimur deildum leikskólans og stórum hluta leikskólalóðarinnar í þessari viku.\r\n\r\nNúverandi Garðasel er þriggja deilda skóli en gert er ráð fyrir að þegar flutt verði í nýja skólann líklega um og eftir áramótin verði hann sex deilda. Hluti skólans átti að vera tilbúinn í haust en það gekk ekki eftir. Búið var að innrita fleiri börn en gátu verið í Garðaseli og fékk leikskólinn að nýta húsnæði skóladagvistar Brekkubæjarskóla á Þekjunni á meðan beðið var eftir að lokið yrði við hluta húsnæðisins.\r\n\r\nVel hefur tekist til með hönnun, húsnæðið bjart og fallegt og er á tveimur hæðum.",
"innerBlocks": []
}