Skagamenn hafa staðið sig vel í körfunni í vetur. Ljósm. vaks

Skagamenn unnu Fjölni í spennuleik

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fjölnir og ÍA mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og var viðureignin í Dalhúsum í Grafarvogi. Skagamenn byrjuðu af miklum krafti í leiknum og voru komnir í tólf stiga forystu eftir rúmar fimm mínútur í fyrsta leikhluta, 6:18. Fjölnismenn komu síðan aðeins til baka í seinni hlutanum og minnkuðu muninn í sex stig, staðan 16:22 fyrir ÍA. Um miðjan annan leikhluta hafði Fjölnir náð að minnka muninn í tvö stig, 34:36, og þannig hélst staðan nánast fram að hálfleik, staðan 41:43 ÍA í vil.\r\n\r\nEftir þriggja mínútna leik í þriðja leikhluta tóku heimamenn öll völd og skoruðu tólf stig í röð gegn engu stigi gestanna á aðeins rúmum tveimur mínútum og staðan allt í einu 57:51 fyrir Fjölni. Skagamenn voru þó snöggir til að jafna leikinn og staðan hnífjöfn fyrir síðasta leikhlutann, 65:65. Baráttan hélt áfram í fjórða leikhluta, jafnt nánast á öllum tölum en Skagamenn þó með undirtökin og héldu heimamönnum alltaf aðeins frá sér. Þegar ein og hálf mínúta var eftir af leiknum hafði ÍA fjögurra stiga forskot, 81:85, en Fjölnismenn skoruðu næstu fjögur stig og jafnt þegar Skagamenn tóku leikhlé og aðeins fimmtán sekúndur eftir á klukkunni. Gabriel Adersteg var síðan hetja Skagamanna þegar hann setti niður þriggja stiga skot á síðustu andartökum leiksins með flautukörfu og tryggði þeim glæstan sigur, lokastaðan 85:88 fyrir ÍA og þriðji sigur þeirra í deildinni staðreynd. ÍA er nú í 4. til 7. sæti í deildinni með sex stig eftir sex umferðir ásamt Ármanni, Selfossi og Skallagrími.\r\n\r\nLucien Thomas Christofis var atkvæðamestur hjá ÍA með 30 stig, Gabriel Adersteg var með 19 stig og 10 fráköst og Davíð Alexander Magnússon með 16 stig. Hjá Fjölni var Kendall Scott með 21 stig og 12 fráköst, Hilmir Arnarson með 19 stig og Karl Ísak Birgisson með 14 stig og 10 fráköst.\r\n\r\nNæsti leikur Skagamanna er á móti Hrunamönnum næsta föstudag á Akranesi og hefst leikurinn klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn unnu Fjölni í spennuleik - Skessuhorn