
Björgvin Hafþór var öflugur á móti Hamar en það dugði ekki til. Ljósm. glh
Skallagrímur tapaði á móti Hamri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skallagrímur tók á móti Hamri í Fjósinu í Borgarnesi í gærkvöldi og varð að sætta sig við tap eftir þrjá sigurleiki í röð í deildinni. Hamarsmenn komust í tíu stiga forystu eftir aðeins þriggja mínútna leik og heimamenn hálf vankaðir í byrjun leiks. Þeir náðu síðan að girða sig í brók undir lok fyrsta leikhluta og höfðu náð að minnka forskot gestanna í fjögur stig, 27:31. Skallagrímur komst síðan yfir fljótlega í öðrum leikhluta en þá sögðu gestirnir stopp, skoruðu alls tólf stig í röð og staðan 37:45 Hamar í vil. Lítið breyttist fram að hálfleik og 46:54 var staðan á klukkunni þegar liðin gengu til búningsklefa til skrafs og ráðagerða.\r\n\r\nIlla gekk hjá heimamönnum í viðleitni þeirra að minnka forskot gestanna og staðan á svipuðum nótum um miðjan þriðja leikhluta, 54:66. Hamarsmenn héldu hamrinum á lofti út leikhlutann og staðan fyrir fjórða og síðasta leikhluta ekki góð fyrir heimaliðið, 66:78. Áfram reyndu Skallagrímsmenn að koma sér inn í leikinn en komust aldrei nálægt að neinu ráði. Hamar hamraði járnið á meðan það var heitt allan síðasta leikhlutann og hitti yfirleitt naglann á höfuðið og ofan í körfuna einnig, lokatölur 88:101 gestunum í vil.\r\n\r\nKeith Jordan Jr. var stigahæstur í liði Skallagríms með 29 stig og 10 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson var með 28 stig og Davíð Guðmundsson með 13 stig. Hjá Hamar var Jose Aldana með 39 stig og þeir Alfonso Birgir Gomez og Björn Ásgeir Ásgeirsson með 21 stig hvor.\r\n\r\nNæsti leikur Skallagríms í deildinni er gegn taplausu toppliði Álftaness mánudaginn 7. nóvember en á sunnudaginn mæta þeir grönnum sínum Snæfelli í Stykkishólmi í 16 liða úrslitum VÍS bikarsins og hefst leikurinn klukkan 16.30.",
"innerBlocks": []
}